Hnífjafnt til hægri og vinstri Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. maí 2026 11:42 Oddvitar Framsóknar, Miðflokks, Viðreisnar og Vinstrisins i kappræðum Sýnar. Vísir/Vilhelm Kjósendur í Reykjavík eru klofnir í afstöðu sinni til þess hvort myndaður verði meirihluti til hægri eða vinstri að kosningum loknum, ef marka má nýja könnun Maskínu. 50,7 prósent vilja meirihluta frá miðju til vinstri en 49,3 prósent vilja meirihluta frá miðju til hægri. Meirihluti kjósenda Viðreisnar vill samstarf til vinstri.
Könnunin fór fram dagana 6. til 12. maí og voru svarendur 1620 talsins. Niðurstöðurnar eru greindar út frá aldri, búsetu, tekjum og því hvaða flokk íbúar myndu kjósa ef gengið yrði til kosninga í dag. Meirihluti kjósenda Viðreisnar vill samstarf til vinstri Mikið hefur verið rætt og ritað um það í hvaða átt Viðreisn muni snúa sér, flokkurinn sé í lykilstöðu þegar komi að myndun meirihluta. Meirihluti kjósenda flokksins, 58,7 prósent vilja að flokkurinn myndi meirihluta frá miðju til vinstri. 41,3 prósent vilja að flokkurinn myndi meirihluta frá miðju til hægri samkvæmt könnun Maskínu. Mjótt er á munum á milli kjósenda Flokks fólksins. 53,9 prósent vilja samstarf vil vinstri en 46,1 prósent samstarf til hægri. Flestir kjósendur Framsóknar, 69,3 prósent vilja samstarf til hægri en 30,7 prósent vilja samstarf til vinstri. 95,1 prósent kjósenda Miðflokksins vilja samstarf til hægri, 4,9 prósent samstarf til vinstri. Horfa má á kappræður Sýnar með oddvitum í Reykjavík hér fyrir neðan. Afstaða annarra kjósenda er afdráttarlausari. Langflestir kjósendur Sjálfstæðisflokks vilja að hann vinni frá miðju til hægri, 96,4 prósent. 89,5 prósent kjósenda Samfylkingar vilja að flokkurinn vinni frá miðju til vinstris og 98,9 prósent kjósenda Vinstrisins vilja slíkt hið sama fyrir sinn flokk. 96,3 prósent kjósenda Pírata vilja að flokkurinn vinni til vinstri. Hundrað prósent kjósenda Sósíalistaflokksins vilja samstarf þeim megin stjórnmálaássins. Gríðarlegur munur á Vesturbæ og Grafarvogi Mikill munur er á afstöðu íbúa í Reykjavík eftir búsetu. Þannig vilja 68,9 prósent íbúa í miðborg og vesturbænum meirihluta frá miðju til vinstri en einungis 35,7 prósent íbúa í Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsárdal. Þar vilja 64,3 prósent íbúa meirihluta frá hægri en það vilja einungis 31,1 prósent íbúa í miðborg og vesturbæ. Minni munur er í öðrum hverfum. Einungis 44,7 prósent íbúa í Breiðholti og Árbæ vilja meirihluta frá miðju til vinstris en 55,3 prósent þeirra vilja meirihluta frá miðju til hægris. Í Hlíðunum, Laugardal, Háaleitishverfi og Bústaðahverfi er mjótt á munum. 52,1 prósent vilja vinstrisinnaðan meirihluta en 47,9 prósent vilja hægrisinnaðan meirihluta. Yngri vilja vinstri en þeir eldri hægri Þá kemur fram í könnun Maskínu að yngri kjósendur séu almennt líklegri til að vilja meirihluta frá vinstri að miðju. Þetta á við í aldurshópunum 18-29 ára og 30 til 39 ára en verður nokkuð jafnt milli þeirra sem vilja vinstrisinnaðan meirihluta og þeirra sem vilja hægrisinnaða í aldurshópunum 40-49 og 50-59 ára. Breyting verður í aldurshópnum 60-69 ára en þar vilja 64,2 prósent meirihluta frá hægri en einungis 35,8 prósent meirihluta frá vinstri. Aftur verður nokkuð jafnt í elsta aldurshópnum, 70 ára og eldri, en 45,7 prósent vilja vinstrisinnaðan meirihluta en 54,3 prósent vilja hægrisinnaðan meirihluta. Tekjulægri vilja vinstri en tekjuhærri hægri Þegar kemur að heimilistekjum er línan almennt sú að tekjulægri vilja meirihluta frá vinstri að miðju en tekjuhærri frá hægri. 65 prósent kjósenda með tekjur lægri en 550 þúsund vilja vinstrisinnaðan meirihluta en 59,4 prósent íbúa með mestu tekjurnar, tvær milljónir eða meira vilja hægrisinnaðan meirihluta. Öllu jafnara er á milli vilja íbúa í öðrum tekjustigum. 56 prósent íbúa með 550 til 799 þúsund vilja vinstrisinnaðan meirihluta, 44 prósent vilja hægrisinnaðan. Sambærilegar tölur eiga við um meðal þeirra sem eru með 800 til 999 þúsund krónur í tekjur á mánuði, 55 prósent vilja vinstrimeirihluta en 45 prósent hægri. Þegar ofar dregur er minni munur. Þeir sem eru með milljón til 1.399 þúsund skiptast nokkuð jafnt. 48,9 prósent vilja vinstrimeirihluta en 51,1 prósent vilja hægrimeirihluta. Staðan er sambærileg í næsthæsta tekjuflokkinum. 51,8 prósent íbúa með 1.400 til 1.999 þúsund vilja vinstrisinnaðan meirihluta en 48,2 prósent hægrisinnaðan.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Skoðanakannanir Borgarstjórn Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Lögreglan varar foreldra við „Island Surge VPN“ „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Sjá meira