Sjálfstæðisflokkurinn feginn eftir áratugalanga eyðimerkurgöngu Kolbeinn Tumi Daðason og Eiður Þór Árnason skrifa 15. maí 2026 20:30 Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson rýndu í stöðuna. Sýn Miklar hreyfingar eru á fylgi flokkanna í Reykjavík samkvæmt síðustu könnun Gallup fyrir kosningar. Ef niðurstöður hennar endurspegla úrslit á morgun er núverandi meirihluti fallinn og verður ekki hægt að mynda annan meirihluta til vinstri.
Magnús Sigurbjörnsson, hlaðvarpsstjórnandi og fyrrverandi framkvæmdastjóri borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins, og Pétur Krogh Ólafsson, hlaðvarpsstjórnandi og fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi, ræddu stöðuna í kvöldfréttum Sýnar. Saman stýra þeir hlaðvarpinu Korter í kosningar. Í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup sem RÚV greindi frá í dag mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 31,3% fylgi, Samfylking með 21,5%, Vinstrið í 11,3%, Miðflokkur 10,9%, Viðreisn 9,8%, Sósíalistar með 4,8%, Framsókn 4,7%, Píratar 2,3% og Flokkur fólksins 2,3% og aðrir minna. „Sjálfstæðisflokkurinn er með átta fulltrúa þarna og 31,3 prósent og bætir svona talsvert við sig milli Gallup-kannana. Það er kannski svona mesta hreyfingin og maður sér það í rauninni að flokkurinn hefur rekið góða baráttu í Reykjavík og það er stemning í Sjálfstæðisflokknum,“ segir Magnús. Pétur bendir á að flokkarnir sem myndi núverandi meirihluta mælist með níu fulltrúa við hliðina á átta fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Meirihlutinn sé því greinilega kolfallinn. „Þeir flokkar sem eru ekki hluti af meirihlutanum núna eru með fjórtán. Þannig að það eru að verða einhver stakkaskipti núna í Reykjavík og maður sér alveg að Sjálfstæðisflokkurinn er rosa feginn að finna loksins meðbyr og stemningu eftir áratugalanga eyðimerkurgöngu.“ Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn raunhæfasti kosturinn Tólf borgarfulltrúa þarf til að mynda meirihluta. Magnús telur að Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn séu eini raunhæfi þriggja flokka meirihlutinn miðað við orðræðu fulltrúa þeirra. Samkvæmt könnun Gallups gætu Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur einnig myndað þriggja flokka meirihluta með Viðreisn. „En við sjáum það að það er ekki langt í næsta mann Samfylkingarinnar inn á kostnað þriðja manns Miðflokksins. Það er alveg fljótt að breytast fylgið og það þarf ekki mikið til í Reykjavík svo það verði hreyfingar,“ segir Magnús. Viðreisn mældist lengi með þrjá fulltrúa en er með tvo í könnun Gallup. Þetta gæti gert það að verkum að Framsóknarflokkurinn verði í sterkari stöðu þegar kemur að meirihlutamyndun í borginni. Sjálfstæðisflokkurinn yfirleitt sterkari á kjördag „Það er kannski ágætt að benda á að þessi tiltekna Gallup-könnun sem kemur þarna inn fyrir kjördag er ofboðslega mikilvæg og er alltaf langnæst því fylgi sem kemur svo upp úr kjörkössunum,“ segir Pétur. Sögulega séð hafi Sjálfstæðisflokkurinn fengið aðeins meira upp úr kjörkössum en þessi síðasta könnun fyrir kjördag hefur gefið til kynna og Samfylkingin minna. Ef horft er til annarra sveitarfélaga í Kraganum þá telja báðir að vert sé að fylgjast með Seltjarnarnesi. „Það er mikil spenna á Seltjarnarnesi og líka úti um allt. Mér finnst svolítið áhugavert að sjá Garðabæ, hvernig hlutirnir þróast þar. Þar hefur náttúrlega Sjálfstæðisflokkurinn verið í meirihluta og er bara með gríðarlega sterka stöðu og maður heyrir að það sé líka mjög góður andi í Garðabænum,“ segir Magnús. Staðan áhugaverð í Vestmannaeyjum Pétur horfir einnig til Kópavogs sem er næststærsta sveitarfélagið. „Þó að Sjálfstæðisflokkurinn verði mögulega langstærstur þar þá er ekkert útilokað að myndaðir verði meirihlutar án hans.“ Magnús telur að það yrði ekki góð staða. „Framsókn í Kópavogi er kannski ekki alveg að fljúga vel og þá er spurning hvað Ásdís [Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi] gerir því hún fær örugglega ekki hreinan meirihluta þar. En það gengur vel allavega í Kópavogi,“ segir Magnús. Ef horft er út fyrir höfuðborgarsvæðið þá telur Magnús áhugavert að fylgjast með Vestmannaeyjum. „Þar eru tveir flokkar svona aðeins búnir að græða sárin og Sjálfstæðisflokkurinn býður fram sterkan lista þar, þannig að hvort hann nái hreinum meirihluta aftur er áhugavert að sjá.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skoðanakannanir Reykjavík Tengdar fréttir Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Meirihlutinn í borgarstjórn er fallinn og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Gallups. Ef niðurstöður hennar endurspegla úrslit kosninganna munu Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn geta myndað saman meirihluta. Ekki yrði hægt að mynda meirihluta til vinstri. 15. maí 2026 18:04 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Sjá meira
Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Meirihlutinn í borgarstjórn er fallinn og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Gallups. Ef niðurstöður hennar endurspegla úrslit kosninganna munu Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn geta myndað saman meirihluta. Ekki yrði hægt að mynda meirihluta til vinstri. 15. maí 2026 18:04