Körfubolti

Kallar eftir nagla­snyrtingu á Króknum

Sindri Sverrisson skrifar
Ragnar Ágústsson skartaði veglegri rispu í sjónvarpssettinu eftir leik í kvöld.
Ragnar Ágústsson skartaði veglegri rispu í sjónvarpssettinu eftir leik í kvöld. Sýn Sport

Ragnar Ágústsson var að sjálfsögðu valinn Just Wingin' it maður leiksins eftir magnaða frammistöðu sína með Tindastóli gegn Grindavík í kvöld, þegar Stólarnir héldu sér á lífi í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn með 94-89 sigri.

Ragnar mætti vel rispaður í settið hjá Körfuboltakvöldi eftir sigurinn, eftir átökin við Grindvíkinga sem Ragnar segir að mættu klippa betur neglurnar sínar.

„Ég þarf eiginlega að fá dómarana til að kíkja á liðið og fá naglasnyrtingu fyrir strákana þarna hinu megin. Þeir eru allir oddhvassir þarna og ég er með nokkrar rispur,“ sagði Ragnar léttur og spurning hvort brugðist verði við þessu fyrir fjórða leik í Síkinu á Sauðárkróki á mánudaginn. Viðtalið við Ragnar má sjá hér að neðan.

Klippa: Ragnar maður leiksins í Grindavík

Talið barst aftur að rispum, þó annars konar, þegar Teitur Örlygsson sagði ljóst að Stólarnir hefðu spilað af meira hugrekki í kvöld og ekki látið það trufla sig þó stjörnur Grindavíkurliðsins settu í fimmta gír á köflum.

„Við vitum alveg að það koma rispur. Við verðum bara að taka þeim og reyna að minnka þessar rispur eins og við getum, og ná að snúa þessu aftur okkar megin,“ sagði Ragnar.

Ragnar var með 27 framlagspunkta á aðeins 20 mínútum sem hann spilaði í kvöld, eftir að hafa tekið heil 13 fráköst og skorað 10 stig.

„Við verðum að ráðast á boltann, sérstaklega sóknarmegin, því við getum fengið auðveldar körfur þegar við náum boltanum. Það er svo mikilvægt í þessari seríu að fá auðveldar körfur,“ sagði Ragnar sem var svo spurður hvort hann væri ekki þreyttur eftir alla orkuna sem hann lagði í leikinn:

„Ég nýti bara hverja einustu mínútu. Við erum með það góðan hóp að hver og einn einstaklingur getur sett sig hundrað prósent í leikinn þegar hann er inná. Ég bara læt vaða og geri allt hundrað prósent, og svo kemur bara skipting.“

Grindavík er enn yfir í einvíginu, 2-1, en fjórði leikur verður á Sauðárkróki á mánudaginn. Vinni Tindastóll þann leik mætast liðin í oddaleik í Grindavík næsta fimmtudagskvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×