Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Samúel Karl Ólason skrifar 16. maí 2026 10:43 Frá því Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tók aftur við embætti forseta í janúar í fyrra hafa auðævi hans nærri því þrefaldast. AP/Jacquelyn Martin Innan ríkisstjórnar Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, er til skoðunar að mynda sérstakan sjóð. Hann á að nota til að greiða pólitískum bandamönnum forsetans skaðabætur vegna rannsókna á meintum glæpum sem þeir stóðu frammi fyrir í tíð ríkisstjórnar Joes Biden. Í flestum tilfellum sneru þessar rannsóknir að tilraunum Trumps og bandamanna hans til að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020.
Líklegt þykir að fólk sem réðst á þinghúsið í janúar 2021, til að koma í veg fyrir að Joe Biden tæki við embætti forseta, myndi fá skaðabætur úr sjóðnum. Trump náðaði alla sem að árásinni komu. Sjá einnig: Náðaði fólk sem beitti lögregluþjóna ofbeldi Til stendur að setja tæplega 1,8 milljarða dala í þennan sjóð en það samsvarar um 223 milljörðum króna. Engin lokaákvörðun hefur verið tekin um sjóðinn en samkvæmt heimildarmönnum New York Times er hugmyndin vinsæl innan dómsmálaráðuneytisins og Hvíta hússins. ABC News hefur einnig heimildir fyrir því að til standi að mynda þennan sjóð, samhliða „Sannleiks- og réttlætisnefnd“ sem stofna á til að deila peningum úr sjóðnum. Sjóðurinn á að byggja á því hvernig ríkisstjórn Baracks Obama myndaði sérstakan sjóð til að greiða bændum af frumbyggjaættum skaðabætur vegna þess að þeim hafði í áratugi verið meinaður aðgangur að alríkisstyrkjum sem aðrir hvítir bændur fengu. Sá sjóður þurfti ekki samþykkt þingsins, sem á að fara með fjárvald vestanhafs, og mun sjóður Trumps því ekki heldur þurfa slíkt samþykki. Sjóði þessum er meðal annars ætlað að binda enda á lögsókn Trumps sjálfs gegn Skattinum í Bandaríkjunum vegna þess að skattskýrslum hans var lekið til fjölmiðla á árum áður. Í því máli fer Trump fram á tíu milljarða dala í skaðabætur, frá ríkisstjórninni sem hann leiðir. Hann hefur einnig talað um að hann vilji skaðabætur vegna Rússarannsóknarinnar svokölluðu. Sjá einnig: Deila á Bandaríkjaforseta fyrir að dansa á gröf rannsakanda Önnur leið til að binda enda á lögsókn Trumps gegn Skattinum, sem sögð er hafa verið til umræðu innan dómsmálaráðuneytisins, er að Skatturinn láti af rannsóknum í garð Trumps og fyrirtækja hans. Slíkar rannsóknir munu hafa staðið yfir um nokkuð skeið. Ráðuneytinu stýrt af fyrrverandi einkalögmanni Trumps Dómsmálaráðuneytinu, sem ætti að verjast lögsókn Trumps gegn Skattinum og sérfræðingar segja að byggi á verulega veikum grunni, er stýrt af Todd Blanche, fyrrverandi einkalögmanni Trumps. Hann tók við af Pam Bondi en hefur ekki verið staðfestur af öldungadeildinni. Lögmenn innan ráðuneytisins eru sagðir telja að Trump hafi rétt á því að höfða mál gegn Skattinum sem bandarískur ríkisborgari og að ekki sé um hagsmunaárekstur að ræða, þó hann sé forseti Bandaríkjanna og hafi þar með yfirstjórn yfir bæði Skattinum og dómsmálaráðuneytinu. Undir stjórn þeirra Bondis og Blanches hafa saksóknarar á vegum ráðuneytisins höfðað fjölda mála gegn pólitískum andstæðingum Trumps og oft á mjög takmörkuðum sönnunargögnum. Mörgum þeirra mála hefur verið vísað frá af dómurum vegna skorts á sönnunargögnum eða sökum þess að málin þykja pólitísk í eðli sínu. Frá því Donald Trump tók aftur við embætti forseta í fyrra hefur auður hans nærri því þrefaldast, samkvæmt áætlunum Forbes. Hann var metinn á 2,3 milljarða dala en er nú metinn á 6,5 milljarða.
Bandaríkin Donald Trump Erlend sakamál Árás á bandaríska þinghúsið Rússarannsóknin Tengdar fréttir Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Forval Repúblikana í Indiana fyrir þingkosningarnar í haust er enn ein sönnun þess að Donald Trump hefur ekki misst tangarhald sitt á flokknum. Trump og hans fólki tókst að refsa næstum því öllum meðlimum flokksins í öldungadeild ríkisþings Indiana, sem neituðu að verða við kröfu forsetans um að teikna ný kjördæmi í ríkinu, Repúblikönum í vil, fyrir komandi kosningar. 7. maí 2026 13:01 Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump James Comey, fyrrverandi forstjóri Alríkislögreglunnar, hefur verið ákærður fyrir líflátshótun í garð Donald Trump Bandaríkjaforseta á grundvelli myndar sem hann birti á samfélgsmiðlum í fyrra. 29. apríl 2026 06:52 Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa á undanförnum dögum stigið fyrir framan fjölda myndavéla og hljóðnema til að lýsa því yfir að Bandaríkjunum sé nauðsynlegt að klára að reisa veislusal Donalds Trump við Hvíta húsið. Skotárásin á kvöldverði samtaka fréttamanna í Hvíta húsinu um helgina staðfesti þá nauðsyn. 28. apríl 2026 10:55 Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira
Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Forval Repúblikana í Indiana fyrir þingkosningarnar í haust er enn ein sönnun þess að Donald Trump hefur ekki misst tangarhald sitt á flokknum. Trump og hans fólki tókst að refsa næstum því öllum meðlimum flokksins í öldungadeild ríkisþings Indiana, sem neituðu að verða við kröfu forsetans um að teikna ný kjördæmi í ríkinu, Repúblikönum í vil, fyrir komandi kosningar. 7. maí 2026 13:01
Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump James Comey, fyrrverandi forstjóri Alríkislögreglunnar, hefur verið ákærður fyrir líflátshótun í garð Donald Trump Bandaríkjaforseta á grundvelli myndar sem hann birti á samfélgsmiðlum í fyrra. 29. apríl 2026 06:52
Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa á undanförnum dögum stigið fyrir framan fjölda myndavéla og hljóðnema til að lýsa því yfir að Bandaríkjunum sé nauðsynlegt að klára að reisa veislusal Donalds Trump við Hvíta húsið. Skotárásin á kvöldverði samtaka fréttamanna í Hvíta húsinu um helgina staðfesti þá nauðsyn. 28. apríl 2026 10:55