Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. maí 2026 16:19 Ari og Ingibjörg eru búin að fjárfesta í einbýlishúsi í Seljahverfinu og fá afhent í sumar. Vísir/Vilhelm/Miklaborg Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, og Ingibjörg Davíðsdóttir, oddviti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi, hafa skrifað undir kaupsamning á einbýlishúsi að Strýtuseli 13 í Breiðholtinu. Um er að ræða 338 fermetra þriggja hæða hús sem áður var í eigu hjónanna Finns Geirssonar og Steinunnar K. Þorvaldsdóttur, sem áttu og ráku Nóa Síríus.
Ari setti íbúð sína í Þorraholti í Garðabæ á sölu í síðasta mánuði og greindi síðan frá því á kjördag að parið væri búið að skrifa undir kaupsamning. Ingibjörg greindi sömuleiðis frá því í kosningasjónvarpi Sýnar að þau væru að flytja í Breiðholtið. Ari og Ingibjörg kaupa húsið af Nóa Síríus-hjónunum Finni Geirssyni og Steinunni K. Þorvaldsdóttur en Finnur lét af störfum eftir 31 ár sem forstjóri félagsins árið 2021 þegar norska fyrirtækið Orkla keypti Nóa Síríus. Fasteignamat eignarinnar er 163 milljónir en um er að ræða 338 fermetra þriggja hæða hús í Seljahverfinu í Breiðholti. Óskað var eftir tilboði í eignina en ekki liggur enn fyrir hvert kaupverðið var. Í húsinu sem hefur verið mikið endurnýjað eru fjögur svefnherbergi, bílskúr og stór lóð við friðað svæði. Þá eru einnig tvö fataherbergi, baðherbergi með skemmtilegu baðkari og líkamsrækt í bílskúrnum. „Lóðin er afar falleg og vel hönnuð, hellulögð að hluta með góðum palli, barnahúsi og gróðursælum garði þar sem álfasteinn prýðir svæðið. Hægt er að njóta bæði morgun- og kvöldsólar í þessu friðsæla umhverfi. Þetta er einstaklega hlýlegt og vandað heimili á einum af bestu stöðunum í Seljahverfi eða á höfuðborgarsvæðinu ef út í það yrði farið,“ sagði í lýsingu um eignina á fasteignavef Vísis. Fyrsta innflutningsgjöfin Framsóknarpenni Á kosningavöku Sýnar fór fréttamaðurinn Tómas Arnar í efri byggðir og hitti þar á Millu Ósk, eiginkonu Einars Þorsteinssonar í Framsókn, og Ingibjörgu, kærustu Ara Edwald, til að forvitnast um stemminguna fyrir úrslitastundina. „Milla, þú er hérna að bjóða Ingibjörgu velkomna í Seljahverfið?“ spurði Tómas en viðtalið var tekið í garði þeirra Millu og Einars. „Jú, við erum hérna í Breiðholti og mér skilst að þú sért nýbúin að kaupa,“ svaraði Milla og beindi orðum sínum að Ingibjörgu. „Akkúrat, skrifuðum undir kaupsamning í gær og fáum afhent í sumar,“ sagði þá Ingibjörg sem hafði greinilega haft nóg að gera í aðdraganda kosninganna. „Ég ætla að leyfa mér að gefa þér fyrstu innflutningsgjöfina þína, ég vona að þetta sé sú fyrsta, því ég veit að það eru miklar Framsóknartaugar í þér. Þannig ég ætla að gefa þér Framsóknarpenna til að skrifa bréf,“ sagði Milla. Ingibjörg var afar þakklát yfir gjöfinni og sagði leitt að vera ekki með neina gjöf á móti. Það væri óþarft að mati Millu enda hefðu þau Einar búið í hverfinu um árabil. Horfa má á viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Fasteignamarkaður Miðflokkurinn Tímamót Reykjavík Hús og heimili Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Fleiri fréttir Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Sjá meira