Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Sindri Sverrisson skrifar 26. maí 2026 21:33 Arnar Breki Björnsson skrifaði undir sinn fyrsta samning við Stjörnuna í vetur. @stjarnanfc Þó að það sé þungskýjað yfir Garðabæ eftir tap gegn Víkingi í kvöld og slæma stöðu í Bestu deildinni þá náði 14 ára Stjörnustrákur stórum áfanga á Samsung-vellinum.
Arnar Breki Björnsson, sem fyrr á þessu ári skrifaði undir sinn fyrsta samning við Stjörnuna, kom nefnilega inn á sem varamaður gegn Íslandsmeisturunum í kvöld og spilaði síðustu mínúturnar. Þar með varð hann sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslands í fótbolta til þess að spila leik, aðeins 14 ára, 10 mánaða og 16 daga gamall. Hann er aðeins tveimur dögum eldri en FH-ingurinn öskufljóti Gils Gíslason var þegar hann þreytti frumraun sína árið 2022. Aðeins KR-ingurinn Alexander Rafn Pálmason, sem fer til Nordsjælland í sumar, hefur þreytt frumraun sína yngri að aldri. Alexander var nefnilega aðeins 14 ára, 4 mánaða og 25 daga þegar hann lék sinn fyrsta deildarleik með KR sumarið 2024. Þeir Alexander, Gils og Arnar Breki eru í hópi fimm leikmanna sem náð að hafa að spila í efstu deild fyrir 15 ára aldur. Stjarnan á tvo þeirra því Alexander Máni Guðjónsson, sem seldur var til Midtjylland í fyrra, lék sinn fyrsta leik árið 2024, rúmum tuttugu dögum fyrir 15 ára afmælið sitt. Eyjamaðurinn Eyþór Orri Ómarsson var sá fyrsti til að spila leik yngri en 15 ára. Fimm þreytt frumraun fyrir 15 ára aldur: Alexander Rafn Pálmason, KR 2024 (14 ára, 4 mánaða og 25 daga) Gils Gíslason, FH 2022 (14 ára, 10 mánaða og 14 daga) Arnar Breki Björnsson, Stjarnan 2026 (14 ára, 10 mánaða og 16 daga) Eyþór Orri Ómarsson, ÍBV 2018 (14 ára, 10 mánaða og 26 daga) Alexander Máni Guðjónsson, Stjarnan 2024 (14 ára, 11 mánaða og 9 daga) Arnar Breki kom inn á sem varamaður á 2. mínútu uppbótartíma í kvöld og gat því lítil áhrif haft á niðurstöðu leiksins sem Víkingar unnu, 3-1. Tapið þýðir að Stjarnan er áfram í 9. sæti með aðeins sjö stig eftir níu leiki, fimm stigum fyrir ofan neðstu tvö liðin, FH og ÍBV, og stigi fyrir ofan Þór. Stjörnumenn eru heilum átján stigum frá toppliði Víkings. Leiðrétting: Upphaflega var fullyrt að Arnar Breki væri sá næstyngsti í sögunni en hið rétta er að hann er sá þriðji yngsti. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Besta deild karla Stjarnan Tengdar fréttir Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslandsmeistarar Víkings stíga ekki feilspor í titilvörn sinni og unnu í kvöld áttunda leikinn í röð þegar þeir höfðu betur gegn Stjörnunni í Garðabæ, 3-1, í 9. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. 26. maí 2026 21:11 Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Freyr ekki lengi án starfs? Fótbolti Gerði „óvart“ merki rasista en slapp með skrekkinn Fótbolti Óheppnir Víkingar mæta ungversku meisturunum Fótbolti Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Golf Skotsýning Úrúgvæja dugði bara til jafnteflis Fótbolti „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Íslenski boltinn Hetjan grét vegna mömmu, afa og ömmu Fótbolti Sterkasti læknir landsins Sport Segir raunhæft að Þjóðarhöllin verði risin árið 2030 Sport Fleiri fréttir „Hvernig sem úrslitin lenda þá skilgreinir það ekki sumarið“ Svona verður útsending Sýnar Sport í kringum stórleiki kvöldsins Sjáðu Fram sækja sigur í sjö marka leik gegn KA Gylfi gerði nýjan samning við Víking „Aðstæðurnar eru erfiðar og þetta tekur á“ Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Uppgjörið: KA - Fram 3-4 | Mörkunum rigndi á Akureyri í sigri Fram Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Mark dæmt af KA eftir að Framari braut á Framara Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Fóru yfir helstu vonbrigðin á tímabilinu Yfirlýsing Fylkis: Biðjast afsökunar og lofa að taka hart á málinu Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ „Smá þolinmæði sem þarf“ „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Sjá meira
Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslandsmeistarar Víkings stíga ekki feilspor í titilvörn sinni og unnu í kvöld áttunda leikinn í röð þegar þeir höfðu betur gegn Stjörnunni í Garðabæ, 3-1, í 9. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. 26. maí 2026 21:11