Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. maí 2026 08:33 Sánchez tók sér nokkra daga til að íhuga stöðu sína eftir að greint var frá því að eiginkona hans sætti rannsókn. Hann ákvað hins vegar að taka slaginn og sitja sem fastast. Getty/LightRocket/SOPA/Alberto Gardin Hart er sótt að Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, þessa dagana en auk þess að vera þyrnir í síðu Donald Trump Bandaríkjaforseta og hafa sætt hótunum frá stjórnvöldum vestanhafs, stendur hann nú frammi fyrir fjölda dómsmála á hendur eiginkonu hans, bróður og öðrum bandamönnum.
Réttarhöld hefjast í dag yfir David Sánchez, sem hefur verið sakaður um spillingu þegar hann þáði starf á vegum borgarráðs Badajoz árið 2017. Sósíalistar voru í meirihluta í ráðinu og Pedro Sánchez leiðtogi Sósíalistaflokksins. David, sem á yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi, hefur neitað sök. Málið gegn David má rekja til kvörtunar af hálfu verkalýðshreyfingarinnar Hreinar hendur, sem hefur tengsl við öfga hægri öfl og er þekkt fyrir að beita dómstólum gegn pólitískum andstæðingum sínum. Ásakanirnar á hendur Begoña Gómez, eiginkonu forsætisráðherrans, má sömuleiðis rekja til Hreinna handa en hún hefur verið ákærð fyrir spillingu og fjárdrátt. Hún er sökuð um að hafa misnotað stöðu sína sem eiginkona Sánchez sjálfri sér til framdráttar og þá er hún sögð hafa misnotað almannafé. Fleiri einstaklingar hafa verið ákærðir í tengslum við ofangreind mál og þá sætir José Luis Rodríguez Zapatero, sem var forsætisráðherra á árunum 2004 til 2011 rannsókn vegna meintrar spillingar, meðal annars í tengslum við björgunaraðgerðum ríkisins í þágu flugfélagsins Plus Ultra árið 2021. Sánchez segir dómsmálin þátt í pólitískum ofsóknum og að sannleikurinn muni koma í ljós. Þá hefur hann sakað dómara um að vera meðseka. „Það leikur enginn vafi á því að það eru dómarar að stunda pólitík og pólitíkusar að setja sig í hlutverk dómara,“ saðgi hann í september síðastliðnum. Pólitískir andstæðingar forsætisráðherrans hafa hins vegar kallað eftir því að fyrirhugðum kosningum á næsta ári verði flýtt. „Það líður ekki sú vika, sú dagur, sú klukkutsund að nýjar upplýsingar koma ekki fram um mafíuna sem stjórnar Spáni. Það verður að stöðva hana og færa fyrir dóm,“ segir Santiago Abascal, leiðtogi hægri flokksins Vox. Guardian fjallar ítarlega um málið.
Spánn Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Fleiri fréttir Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Sjá meira