Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Jakob Bjarnar skrifar 28. maí 2026 14:45 Linda Rós og Fíllinn í Eyjum. Hún segir þöggun og ofbeldi einkenna stjórnarhætti í Eyjum, þar sem fólk er látið gjalda sinna pólitísku skoðuna. vísir/vilhelm/aðsend „Ég er atvinnulaus núna. Ég var að vinna hjá Eflu en missti starfið þar,“ segir Linda Rós Sigurðardóttir tækniteiknari í Vestmannaeyjum.
Linda segir að uppgefnar ástæður fyrir því hafi verið minni verkefnastaða hjá Eflu, hvar hún starfaði þá, en hún telur Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra hafa sitthvað með það að gera. Verkefni sem bárust frá bænum hafi dregist saman meðan hún var á Eflu – eins og hún hefði gert Írisi eitthvað. En hún starfaði fyrir Miðflokkinn í Eyjum, og það er ekki vel séð, að sögn Lindu Rósar. „Að vera ekki réttu megin í pólitíkinni. Bilað að þetta sé farið að elta mann yfir á annan vinnustað.“ Linda segir að eftir samtal Írisar bæjarstjóra við yfirmann hjá Eflu hafi farið að hitna undir henni. Áður starfaði hún hjá Vestmannaeyjabæ þar sem henni var sagt upp. Hún hafi hugsað sem svo að hún fengi bara aðra vinnu og gott að vera laus úr erfiðri stöðu hjá Vestmannaeyjabæ. Síðan hóf hún störf hjá Eflu. „Nýlega fæ ég síðan þær fréttir að æðsti yfirmaður bæjarins hafi rætt símleiðis við yfirmann á mínum vinnustað og að, eins og það var orðað, augljóslega væri ég ekki réttu megin í pólitíkinni. Já, þessi sómakálfur sem þið kusuð sem bæjarstjóra fer svona að, losar sig við óþarfa fólk og leggur sig fram við að vera kvenkyns hundur við þá sem hafa ekki hennar skoðanir,“ skrifar Linda á Facebook. Hún segist hafa verið reið þegar hún skrifaði þetta. Hélt að hagur sinn færi að vænkast en það reyndist skammgóður vermir Linda Rós ritar þá grein á Vísi þar sem farið er yfir þrúgandi þöggun og ógnarstjórnun sem hún segir ríkja í Vestmannaeyjum og að þar skipti pólitíkin öllu máli. Hún segist engu hafa að tapa lengur. Hún starfaði sem tækniteiknari á umhverfis- og tæknisviði bæjarins en missti starfið þar. Hún telur einsýnt að hún hafi kærumál í höndunum. „En ég bara fór. Dauðfegin að vera laus,“ segir Linda Rós. Hún segir frá tildrögunum í pistli sínum: „Ég hafði lengi beðið eftir breytingu á starfi mínu sem mér hafði um tíma verið tjáð að væri í farvatninu. Þegar ekkert gekk fór ég að skoða aðra starfsmöguleika,“ skrifar Linda Rós eftir að hafa lýst því hvernig þöggunin birtist og hvernig hún virkar: „Auglýst var starf sem ég hafði áhuga á og tilkynnti ég það yfirmanni mínum. Hann bað mig að bíða og staldra við þar sem breytt staða væri væntanleg fyrir mig. Að lokum kom samningur sem ég skrifaði undir í góðri trú. Þar var um að ræða meiri ábyrgð, stærri verkefni og kjör sem mér þóttu í samræmi við það sem lagt var upp með.“ Enginn á að þurfa að ganga í gegnum svona nokkuð En fimm dögum síðar var Lindu hins vegar tilkynnt að samningurinn hefði verið gerður fyrir mistök. „Kjörin sem áður höfðu verið samþykkt voru dregin til baka og eftir stóð staða sem var óljós og allt önnur en mér hafði verið talin trú um. Því var síðar haldið fram að réttir verkferlar bæjarins hefðu ekki verið virtir (en ferlar í ráðningum þessa sveitarfélags eru efni í skrif út af fyrir sig) og að óvissa ríkti nú innan stjórnsýslunnar um hvernig staðið hefði verið að fyrirhugaðri tilfærslu minni í starfi. Niðurstaðan varð þá á endanum mjög skýr fyrir mig: ég átti ekki lengur að vera þarna.“ Linda Rós skrifaði Facebook-færslu sem er hliðstæð efni pistilsins sem hún svo sendi Vísi og þar má sjá mikil viðbrögð við orðum hennar. Þar tekur til að mynda starfsmaður bæjarins, Margrét Rós Ingólfsdóttir, sem er starfsmaður Vestmannaeyjabæjar, til máls og segir sárt að lesa þetta, um nokkuð sem enginn eigi að þurfa að ganga í gegnum: „Ég er ein af þeim sem hafa á sl. árum stundum fengið „ábendingar“ og „athugasemdir“ um greinar sem ég hef skrifað, athugasemdir og læk, bæði hvað stendur í þeim og hvenær þau eru gerð, þannig að ég upplýsi að þessi skilaboð til þín eru skrifuð á vinnutíma, en ég sit á klóinu.“ Íris hafnar því alfarið að hafa rætt við Eflu Linda Rós lýkur pistli sínum á að segja að sveitarfélagi eigi ekki að vera stýrt með þeim hætti að fólk upplifi að skoðanir þess geti haft áhrif á starfsöryggi og stöðu: „Það er alvarlegt þegar starfsfólk eða óbreyttir íbúar upplifa að skoðanir, tengsl eða það eitt að standa með öðrum geti haft neikvæð áhrif (og héðan hefur fólk beinlínis flúið). Það á aldrei að vera eðlilegt að fólk velti því fyrir sér hvort þögn sé hið eðlilega þegjandi samkomulag til þess að fá að vera með. Og það er alvarlegast af öllu að búa í samfélagi sem hefur í nokkur ár vanist því að heyra margar svona sögur sem enginn þorir að segja upphátt.“ Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja kannast ekkert við að hafa hringt í neinn hjá Eflu og haft afskipti af starfsmannahaldi þar.vísir/vilhelm Ljóst er að Linda Rós er að skrifa um lögmál sem erfitt er að festa fingur á en margir telja sig þekkja. Íris Róbertsdóttir var stödd í sumarfríi þegar Vísir heyrði í henni og vildi bera undir hana efni pistils Lindu Rósar. Íris sagðist ekki geta tjáð sig um þetta tiltekna mál án þess að skoða það nánar og hún taldi sig ekki vera í aðstöðu til þess. Aðspurð hvort hún hafi hlutast til um störf Lindu Rósar hjá Eflu segir Íris það af og frá. „Ég hef aldrei hringt í neinn hjá Eflu.“ Forsvarsmenn Vestmannaeyjabæjar hafa fyrir sitt leyti svarað fyrirspurn sem Eyjafréttir sendu af þessu tilefni: „Í svari bæjarins segir að engar formlegar kvartanir eða ábendingar hafi borist á undanförnum árum sem varði starfsumhverfi eða samskipti stjórnenda og starfsfólks. „Hjá Vestmannaeyjabæ starfa rúmlega 500 starfsmenn við 18 stofnanir. Ef fyrirspurn Eyjafrétta á eingöngu við Ráðhús að þá hafa engar formlegar kvartanir eða ábendingar borist síðustu ár,“ segir í svarinu.“ Reglulegar mannauðskannanir eru gerðar og niðurstöður sýni þvert á móti aukna starfsánægju. Bæjaryfirvöld segja hins vegar að þau geti ekki tjáð sig um einstök starfsmannamál né umræðu á samfélagsmiðlum.
Vestmannaeyjar Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinnumarkaður Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent Fleiri fréttir Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu