Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Aron Guðmundsson skrifar 30. maí 2026 10:00 Emil Barja er nýr þjálfari Stjörnunnar og þarf hann, ásamt stjórn körfuknattleiksdeildar félagsins að sannfæra lykilmenn um að halda vegferð sinni áfram í Garðabænum þar sem markmiðið er að sækja alla þá titla sem í boði eru Stjarnan hefur ráðið Emil Barja sem aðalþjálfara meistaraflokks karla til tveggja ára. Hann ætlar sér stóra hluti með liðið en óvíst er með framtíð lykilmanns liðsins, Hilmars Smára Henningssonar.
Stjarnan tilkynnti um ráðninguna á fimmtudaginn síðastliðinn en Baldur Þór Ragnarsson, sem gerði liðið að Íslandsmeisturum í fyrsta sinn árið 2025, hætti á dögunum og tók í kjölfarið við liði Álftaness. Emil Barja kemur frá Haukum þar sem að hann þjálfaði síðasta meistaraflokk kvenna sem meðal annars varð Íslandsmeistari árið 2025. Hvernig náðu þeir hér í Garðabænum að selja þér það að fara úr Hafnarfirðinum og koma hingað yfir? „Það var bara svona hjá mér að prufa eitthvað nýtt,“ segir Emil í samtali við Stefán Árna Pálsson, íþróttafréttamann Sýnar. „Það var aðal málið. Jú, það er alltaf gaman að vera í sínum þægindaramma og mér leið vel í Hafnarfirði, Haukar er frábær klúbbur en það er alltaf gaman að prufa eitthvað nýtt. Hoppa út fyrir þægindarammann og skora á sjálfan sig.“ Fyrstu símtölin tekin Stjarnan komst í undanúrslit Bónus deildarinnar á nýafstöðnu tímabili en mátti þola mikil áföll í kringum einvígi sitt gegn Tindastóls þar og með meiðslahrjáð lið féllu Garðbæingar úr leik. Nú fer vinna af stað að endursemja við lykilleikmenn liðsins. Ægir Þór Steinarsson er búinn að skrifa undir nýjan samning og sömuleiðis Bjarni Guðmann en aðrir standa eftir. Það er væntanlega forgangsatriði fyrir þig að halda mönnum eins og Hilmari Smára Henningssyni og Orra Gunnarssyni? „Já klárlega. Fyrstu símtölin voru í þá. Það er fullt af ungum leikmönnum hérna sem þarf að halda og hugsa um. Stjarnan er eitt sigursælasta yngri flokka félag á landinu. Það eru leikmenn sem eru að koma upp sem maður vill halda líka.“ Hilmar Smári og Orri. Verða þeir áfram? „Ég bara veit það ekki. Hilmar eru úti á Spáni núna í fríi með fjölskyldunni. Ég ætla að leyfa honum að vera í fríi en ég veit að stjórn deildarinnar er búin að vera tala við þá. Vonandi (verða þeir áfram).“ Markmiðið er aðeins eitt í Garðabænum. Að sækja alla þá titla sem í boði eru. „Ég myndi ekki vera að koma hingað ef menn ætluðu að sætta sig við áttunda sæti. Það er markmiðið að reyna sækja alla titla.“ Viðtalið við Emil Barja, nýráðinn þjálfara karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Bónus-deild karla Stjarnan Mest lesið Gunnlaugur Árni á U.S. Open Golf Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Handbolti Fleiri fréttir Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Sjá meira