Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Sindri Sverrisson skrifar 4. júní 2026 12:02 DeAndre Kane fagnaði Íslandsmeistaratitli á Sauðárkróki í maí en var svo handtekinn við komuna heim til Pittsburgh síðasta föstudag. Vísir/Sigurður Ingi Pálsson Eins og búist var við losnaði DeAndre Kane, leikmaður Íslandsmeistara Grindavíkur í körfubolta, fljótt úr fangelsi í Pittsburgh. Hann er væntanlegur aftur til Íslands í september til að verja Íslandsmeistaratitilinn.
Kane var handtekinn á flugvellinum við komuna frá Íslandi til Pittsburgh, vegna þess að hann skuldaði 100.000 Bandaríkjadali í meðlagsgreiðslur, eða um 12,3 milljónir króna. „Þetta er bara eins og við reiknuðum með. Allt komið í ferli og hann er búinn að semja um hvernig þetta verður. Hann mætir hingað í september, sprækur sem lækur,“ segir Óli Björn Björgvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur. Kane var dæmdur árið 2023 til að greiða skuldina en hann hafði þá komist að því að hann ætti sjö ára gamlan son, eins og Óli Björn upplýsti á Vísi um síðustu helgi: „Hann á þrjú börn þarna úti, tvö með núverandi konunni sinni og svo þennan dreng sem þetta mál snýst um. Mér skilst að hann sé 11-12 ára gamall í dag og Kane fékk ekki að vita af honum fyrr en strákurinn var orðinn sjö ára gamall, þegar mamma hans kemur og segir honum að hann eigi þennan dreng. Hann er þá dæmdur til að borga barnameðlag sjö ár aftur í tímann og þannig er þessi skuld tilkomin. Hann hefur talað um þetta við okkur og ekkert farið í grafgötur með að hann skuldaði barnameðlag úti, og ég hélt að þetta væri bara í einhverju ferli. Að hann hefði samið um einhverjar mánaðarlegar greiðslur eða slíkt. En það er greinilega ekki þannig. Það kemur mér því jú svolítið á óvart að hann hafi hreinlega verið tekinn fastur karlgreyið þegar hann kom þarna út,“ sagði Óli Björn í viðtali við Vísi um helgina. Hann staðfesti í dag að Kane væri laus úr fangelsi og búinn að semja um greiðslur vegna málsins. Aðspurður hvort Grindvíkingar myndu hjálpa Kane sérstaklega með skuldina svaraði Óli Björn: „Nei, þetta er bara eitthvað sem hann semur um. Hann er allavega kominn út og málið að mér skilst í farveg sem allir eru sáttir við.“ Kane kom til liðs við Grindavík árið 2023 og hefur verið algjör lykilmaður í liðinu síðan, sem og einn allra besti leikmaður Bónus-deildarinnar. Hann er með samning við Grindvíkinga sem gildir út næstu leiktíð.
Bónus-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Fleiri fréttir Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Sjá meira