Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 6. júní 2026 07:01 Yfir sumartímann er fjölda tilboða sérstaklega beint að börnum. Skemmtileg og skapandi námskeið hjálpa mörgum barnafjölskyldum að brúa bilið milli langra sumarleyfa barna og styttri frídaga á vinnumarkaði. Boðið er upp á fimleikanámskeið, fótboltanámskeið, leiklistarnámskeið, námskeið í kvikmyndagerð, dansnámskeið og margt fleira. Gróskan er mikil og krafturinn í íslensku samfélagi augljós. Nákvæmlega þessa stundina eru ótal barnafjölskyldur að skoða þessi skemmtilegu námskeið og skrá börnin sín á þau, og tilhlökkunin er mikil. En þessi tækifæri nýtast ekki öllum jafnt. Tekjuminni eða tekjulitlir foreldrar hafa oft ekki efni á að greiða fyrir það sem í boði er. Frístundastyrkir sveitarfélaga eru víða uppurnir áður en vorið er hálfnað. Þetta sýnir skýrt að aðgangur barna að því sem boðið er upp á er ekki jafn. Mörg börn sitja eftir þegar félagar þeirra sækja námskeið, læra nýja hluti, sitja önnur eftir heima. Allt of oft er raunveruleikinn sá að ef börn eru ekki í skipulögðu sumarstarfi eða í fríi með fjölskyldunni, eru þau ein heima við skjáinn. Það er hvorki æskilegur né réttlátur kostur. Stýrihópur á vegum mennta- og barnamálaráðherra vinnur nú að stefnu og aðgerðum sem eiga að tryggja börnum jöfn tækifæri og rjúfa vítahring fátæktar. Undirrituð fer fyrir hópnum og stefnt er að því að kynna drög að aðgerðum í samráðsgátt um mitt sumar. Í víðtæku samráði við fjölskyldur, sveitarfélög, skólasamfélagið, félagasamtök og aðra hagaðila hefur komið fram að sumarið getur verið afar flókinn tími fyrir margar fjölskyldur. Ekki síst fyrir tekjuminni fjölskyldur en líka margar með meðaltekjur. Það var afar jákvætt að sjá stjórnmálaflokka leggja áherslu á þetta viðfangsefni í nýafstöðnum sveitastjórnakosningum. Meðal annars með tillögum um tekjutengdan frístundastyrk eða eina ókeypis frístund fyrir tekjulágar fjölskyldur. Sveitarfélögin mættu einnig gjarnan skoða hvernig hægt er að tryggja að börn frá tekjulágum heimilum geti tekið þátt í frístundum á sumrin, meðal annars með sérstökum sumarfrístundastyrkjum. Það er jákvætt að mörg sveitarfélög bjóða nú þegar upp á sumarfrístund, sem oft er hagkvæmari kostur fyrir tekjulágar barnafjölskyldur en önnur dýrari sumarnámskeið. En staðan er misjöfn og sum sveitarfélög bjóða einfaldlega ekki upp á slíkt. Spurningin er einföld: Á sumarið að vera tími þar sem sum börn fá að njóta, læra og blómstra, en önnur sitja eftir? Svarið ætti að vera nei. Sumarið á að vera fyrir öll börn. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Börn og uppeldi Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar