Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Samúel Karl Ólason skrifar 5. júní 2026 15:06 Rússneski geimfarinn Sergey Kud-Sverchkov gerði viðgerðir á geimstöðinni síðasta mánuði. NASA Rússneskir geimfarar ætla sér að framkvæma viðgerðir á rússneskum hluta Alþjóðlegu geimstöðvarinnar sem hefur lekið um árabil. Nýir lekar hafa greinst en geimfarar NASA áttu að leita sér skjóls um borð í geimfari sem er við geimstöðina á meðan viðgerðirnar yrðu framkvæmdar en hætt var við að gera þær í dag.
Þessi rússneski hluti geimstöðvarinnar kallast Zvezda og hefur hann lekið um langt skeið. Þá hafa myndast á honum sprungur sem fylgst hefur verið með í gegnum árin. Sjá einnig: Segjast hafa fundið lekann á geimstöðinni Einn af yfirmönnum NASA sagði frá því í dag að eftir að nýir lekar greindust á Zvezda hafi forsvarsmenn geimvísindastofnunar Rússlands, Roscosmos, ákveðið að fara í umfangsmeiri viðgerðir en framkvæmdar hafa verið hingað til. Óljóst er hve mikil hættan er vegna viðgerðanna en Bethany Stevens segir að ákvörðunin um að senda geimfarana fjóra í geimfarið hafi verið tekin af ýtrustu varúð. Hvenær fara á í viðgerðirnar er ekki ljóst þegar þetta er skrifað. Roscosmos has paused Friday’s structural repair efforts inside the Zvezda service module transfer tunnel, known as PrK, as more measurements and data is assessed. Given this development, NASA has instructed the crew members inside the Dragon spacecraft to end the safe haven…— Bethany Stevens (@NASASpox) June 5, 2026 Rússar lýstu því yfir árið 2022 að þeir ætluðu að slíta sig frá samstarfinu um Alþjóðlegu geimstöðina. Þá var sú ákvörðun tekin vegna refsiaðgerða gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Undanfarin ár hafa ummerki um slæma stöðu geimiðnaðar Rússlands litið dagsins ljós. Þá var rússneskur geimfari sakaður um njósnir í fyrra og var honum vísað úr teymi geimfara sem átti að fara til geimstöðvarinnar. Sjá einnig: Rússneskur geimfari sakaður um njósnir Alþjóðlegu geimstöðinni var komið á sporbraut um jörðu árið 1998. Geimstöðin, sem er á stærð við amerískan fótboltavöll, fer umhverfis jörðina á níutíu mínútna fresti og allar götur frá árinu 2000 hefur einhver geimfari verið þar um borð. Upprunalega átti geimstöðin að vera í notkun í einungis fimmtán ár. Nú stendur til að láta hana hrapa til jarðar árið 2031. Þá mun hún lenda á afviknum stað í Kyrrahafinu en þangað er geimrusl reglulega sent. Staðurinn þykir hentugur til slíks þar sem rúmir 2.700 kílómetrar eru í næstu mannabyggð.
Alþjóðlega geimstöðin Bandaríkin Rússland Geimurinn Tengdar fréttir Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Eldflaug fyrirtækisins Blue Origin í eigu Jeff Bezos sprakk í loft upp í tilraunaskoti í Flórída í gærkvöldi. Engum starfsmanni var meint af en gríðarstór eldhnötturinn sást víða. 29. maí 2026 07:29 Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Senda á þrjú ómönnuð geimför til tunglsins á þessu ári og á að nota þau til að leggja grunninn að mönnuðum ferðum þangað og byggingu nýrra bækistöðva á yfirborðinu. Vonast er til þess að þrjú mismunandi lendingarför verði send til tunglsins á árinu og eiga þau að bera tungljeppa og ýmiskonar vísindabúnað þangað. 27. maí 2026 14:14 Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Jared Isaacman, æðsti yfirmaður Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA), vill að Plútó verði skilgreind sem reikistjarna á ný. Næstum tveir áratugir eru liðnir síðan að himintunglið var svipt titlinum. 2. maí 2026 22:58 Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. 30. apríl 2026 13:17 Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Í nótt fara geimfararnir um borð í Artemis II aftur fyrir tunglið og í um fjörutíu mínútur rofnar allt samband við þá. Sjálft tunglið er fyrir. Í leiðinni verða þeir lengra að heiman en nokkur manneskja frá upphafi. 6. apríl 2026 10:49 Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Fleiri fréttir Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Sjá meira
Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Eldflaug fyrirtækisins Blue Origin í eigu Jeff Bezos sprakk í loft upp í tilraunaskoti í Flórída í gærkvöldi. Engum starfsmanni var meint af en gríðarstór eldhnötturinn sást víða. 29. maí 2026 07:29
Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Senda á þrjú ómönnuð geimför til tunglsins á þessu ári og á að nota þau til að leggja grunninn að mönnuðum ferðum þangað og byggingu nýrra bækistöðva á yfirborðinu. Vonast er til þess að þrjú mismunandi lendingarför verði send til tunglsins á árinu og eiga þau að bera tungljeppa og ýmiskonar vísindabúnað þangað. 27. maí 2026 14:14
Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Jared Isaacman, æðsti yfirmaður Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA), vill að Plútó verði skilgreind sem reikistjarna á ný. Næstum tveir áratugir eru liðnir síðan að himintunglið var svipt titlinum. 2. maí 2026 22:58
Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. 30. apríl 2026 13:17
Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Í nótt fara geimfararnir um borð í Artemis II aftur fyrir tunglið og í um fjörutíu mínútur rofnar allt samband við þá. Sjálft tunglið er fyrir. Í leiðinni verða þeir lengra að heiman en nokkur manneskja frá upphafi. 6. apríl 2026 10:49