Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar 5. júní 2026 18:18 Síðustu daga hefur staðið yfir umræða á Alþingi um samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040. Eðli málsins samkvæmt hefur annað mál á dagskrá þingsins um hið svokallaða innviðafélag samtvinnast þeirri umræðu allverulega og deila má um hvort þeirra hefði átt að ræða á undan. Stofnun innviðafélags er ágæt hugmynd og veggjöld ein og sér í sjálfu sér sömuleiðis. Hins vegar er með öllu óásættanlegt að stjórnvöld ætli sér að leggja af stað í þá vegferð með því að auka álögur enn frekar á eigendur ökutækja í landinu, hvort sem það eru einstaklingar eða fyrirtæki. Það þarf engum blöðum að flétta um það að innviðaskuld samgangna hér á landi er veruleg og hún vaxið með hverju árinu sem liðið hefur, bæði í nýfjárfestingum og viðhaldi. Vissulega er staðreyndin sú að álag á samgöngum landsins hefur aukist með aukinni verðmætasköpun, auknum vöruflutningum og tilkomu ferðaþjónustunnar í þeirri mynd sem við þekkjum hana í dag. Aftur á móti hefur skattgreiðendum fjölgað samhliða. Það virðist oft og tíðum gleymast í umræðunni að þeir ferðamenn sem sækja Ísland heim greiða kílómetragjald, kolefnisgjald og aðra skatta líkt og heimamenn þegar þeir ferðast um landið á meðan dvöl þeirra stendur. Við erum fámenn þjóð í stóru landi og því ættu komur erlendra ferðamanna, og þannig aukinn fjöldi skattgreiðenda, að hjálpa til við að byggja upp og viðhalda samgöngukerfi á Íslandi. Vandamálið er að forgangsröðun fjár hefur verið úti í skurði í boði stjórnvalda sem er miður. Gömul saga og ný Björn Pálsson, fyrrverandi alþingismaður Austur-Húnvetninga og bóndi, komst svo að orði í ræðustól Alþingis árið 1962 í umræðum um vegasamgöngur: „Aðalatriðið er, að fólkið þarf að fá þennan veg, og það borgar sig að láta það hafa veginn, því að undirstaða undir öllu heilbrigðu atvinnulífi og afkomu fólks yfirleitt er, að samgöngur geti verið í lagi“. Á þessum tíma var Björn að vísa til vegasambands Siglufjarðar en meginboðskapur hans augljóslega víðtækari enda eru góðar samgöngur grunnforsenda atvinnulífs og búsetu einstaklinga. Öll hljótum við að vera sammála um að aukin verðmætasköpun er af hinu góða en gegndarlausar hækkanir álaga leggja stein í götu hennar. Það að byrja að rukka veggjöld í auknum mæli án þess að fella niður kílómetragjaldið, án þess að fella niður kolefnisgjaldið og án þess að lækka eða fella niður vörugjöld af ökutækjum kann einfaldlega ekki góðri lukku að stýra. Hér verður að staldra við, byrja á því að taka til í fjármálum hins opinbera og ráðstafa fé með skynsamlegri hætti. Því fyrr sem stjórnvöld átta sig á því að skatttekjur eru ekki ótæmandi uppspretta, því betra. Undirrituð hvetur stjórnvöld í það minnsta til þess að taka tillit til athugasemda atvinnulífsins við áframhaldandi meðferð málanna tveggja á Alþingi. Höfundur er hagfræðingur Samtaka ferðaþjónustunnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun