Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. júní 2026 11:34 Maja Chwalinska hefur slegið í gegn á Opna franska. Ian MacNicol/Getty Images Hin pólska Maja Chwalinska er einum sigri frá sínum fyrsta meistaratitli á risamóti í tennis. Hún bjóst alls ekki við því þegar hún hóf undankeppnina og hafði helst áhyggjur af hótelkostnaðinum.
Chwalinska er í 114. sæti heimslistans og hefur komist alla leið úr undankeppninni í úrslitaleikinn. Þetta Öskubuskuævintýri virðist engan enda ætla að taka en Mirra Andreeva mun standa í vegi hennar þegar úrslitaleikurinn hefst á eftir. Á leið sinni í úrslitaleikinn hefur Chwalinska safnað rúmlega 1,6 milljónum dollara í verðlaunafé, sem jafngildir tæplega 200 milljónum króna og er um tvöfalt meira en hún hafði þénað á öllum ferlinum fram að þessu móti. Hennar helsta markmið var bara að komast inn á Opna franska en þegar sigrarnir héldu áfram að hrannast inn lenti hún í smá vandræðum. Verðlaunaféð fær hún nefnilega ekki fyrr en eftir mótið, þannig að þegar Chwalinska ílengdist í París hafði hún ekki efni á fleiri nóttum á hótelinu. „Ég vona að það séu einhver herbergi laus… Og ég vona að ég geti fundið peninga fyrir því,“ sagði Chwalinska þá en þetta reddaðist allt saman. Keppnistreyja Chwalinska hefur tekið töluverðum breytingum á leiðinni í úrslitaleikinn. Fyrirtækið Oshee bauðst til að greiða fyrir hana hótelkostnað og Chwalinska hefur fengið fleiri með sér í lið. Hún byrjaði mótið í ómerktri treyju en nú er treyjan skreytt merkjum fjögurra fyrirtækja. Álagið er samt farið að taka á hana. Enginn leikmaður hefur spilað fleiri leiki á mótinu. „Það er mjög erfitt að spila gegn bestu leikmönnum heims dag eftir dag, en ég meina þetta er risamót þannig að maður lætur sig hafa það. Ég ætla að gefa allt í þetta og meira en það. Ég er alls ekki að kvarta,“ sagði Chwalinska fyrir úrslitaleikinn. Úrslitaleikur Opna franska meistaramótsins hefst klukkan 13:00 í beinni útsendingu á Eurosport stöðinni sem fylgir með sportáskrift að Sýn.
Tennis Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Ekki sofa á Valsmönnum Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Sextán tíma flug og spilað fyrir hádegi Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Daníel Leó til dönsku meistaranna „Hvers konar spurning er þetta?“ Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Dagskráin í dag: Íslendingarnir í Magdeburg í eldlínunni Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Lando Norris stofnar sitt eigið lið Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Hadjar frá í aðra keppni Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Sjá meira