Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. júní 2026 14:22 Veðrið hafði skánað töluvert þegar 53 kílómetra hópurinn lagði af stað. hengill ultra Vont veðurfar gerði hlaupurum lífið leitt í Hengill Ultra hlaupinu sem hófst í gær og lauk í morgun. Rúmlega helmingur þurfti að hætta á miðri leið.
Hengill Ultra er 106 kílómetra hlaup, þar sem 53 kílómetra leið er hlaupin tvisvar. Leiðin liggur inn að Hengli, yfir fjallgarðinn, niður Sleggjubeinsskarð og þaðan til Hveragerðis þar sem hlaupið hófst og endaði. Hlaupið var af stað klukkan átta í gærkvöld og síðustu keppendur skiluðu sér yfir marklínuna um hálf ellefu í morgun. Metskráning var í 106 kílómetra hlaupið í ár. 25 skráðu sig til leiks. Engin alvarleg meiðsli komu upp en vegna veðurs þurftu 13 af 25 hlaupurum að hætta. „Mikil bleyta er á leiðinni og áfram rigndi í nótt með tilheyrandi kulda og háum loftraka sem hefur reynt verulega á keppendur,“ var skrifað á Facebook síðu hlaupsins í morgun. 12 hlauparar náðu hins vegar að klára Hengil Ultra. Tómas Aron Viggósson vann gullverðlaun er hann kom fyrstur í mark, langfyrstur reyndar. Hann kláraði hlaupið á 14:34:14 klukkutímum. Tómas er af íþróttamönnum kominn. Faðir hans er Viggó Sigurðsson, einn besti handboltamaður í sögu Íslands og sá eini sem hefur spilað landsleik fyrir Spán. Næstir á eftir honum voru Þorleifur Þorleifsson (15:48:14) og Hlynur Jóhannsson (15:59:52). Samhliða Hengil Ultra eru hlaupnar styttri vegalengdir; 53 kílómetra, 26 kílómetra, 10 kílómetra og 5 kílómetra, þar sem hundruð manna taka þátt.
Hlaup Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Ekki sofa á Valsmönnum Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Sextán tíma flug og spilað fyrir hádegi Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Daníel Leó til dönsku meistaranna „Hvers konar spurning er þetta?“ Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Dagskráin í dag: Íslendingarnir í Magdeburg í eldlínunni Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Lando Norris stofnar sitt eigið lið Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Hadjar frá í aðra keppni Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Sjá meira