Ótrúlegur lokasprettur og Aron vann þriðja mótið í röð Valur Páll Eiríksson skrifar 7. júní 2026 22:31 Aron Snær fagnaði sigri í Þorlákshöfn eftir magnaðan lokasprett. Mynd/GSÍ Aron Snær Júlíusson fagnaði sigri á þriðja móti sumarsins á mótaröð GSÍ og hefur unnið öll þrjú. Hann var tveimur höggum á eftir fyrsta manni fyrir síðustu tvær holurnar.
Powerade-mótið fór fram í Golfklúbbi Þorlákshafnar um helgina og úr varð hin mesta skemmtun. Spennan var mikil á lokahringnum. Aron Snær var tveimur höggum á eftir Böðvari Braga Pálssyni þegar síðustu tvær holurnar voru eftir á lokahring mótsins í dag. Aron fékk örn á sautjándu braut og fugl á þeirri átjándu á meðan Böðvar fékk einn skolla. Aron vann þannig fjögur högg á Böðvar og vann mótið, en Böðvar Bragi hafnaði í öðru sæti ásamt Hákoni Erni Magnússyni, tveimur höggum á eftir sigurvegaranum Aroni. Hákon Örn fékk 19 fugla á hringjunum þremur á mótinu, flesta allra. Fyrsti sigur Evu Eva er hér önnur frá vinstri. Hún fagnaði sigri í dag.Mynd/GSÍ Í kvennaflokki stóð Eva Kristinsdóttir úr GM uppi sem sigurvegari. Hún lék hringina þrjá á sex höggum undir pari vallar eftir hringi upp á 73, 68 og 69 högg. Eva hafði hafnað í þriðja sæti á fyrstu tveimur mótum sumarsins en tekur nú stökk upp listann í stigakeppninni með sínum fyrsta sigri. Andrea Ýr Ásmundsdóttir úr GA varð önnur á einu höggi undir pari og þær Elsa Maren Steinarsdóttir úr GL og Karen Lind Stefánsdóttir úr GKG deildu þriðja sætinu. Næsta mót er Íslandsmótið í holukeppni sem fram fer 19.-21. júní.
Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Fótbolti Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira