Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. júní 2026 10:35 Sigurjóni Sighvatssyni verða veitt heiðursverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Locarno. Vísir/vilhelm Sigurjón Sighvatsson, kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðandi, verður heiðraður með Raimondo Rezzonico-verðlaununum á Locarno-kvikmyndahátíðinni í Sviss í ágúst. Hátíðin er ein sú elsta og virtasta í Evrópu.
Kvikmynda- og bransamiðillinn Deadline greinir frá. Kvikmyndahátíðin í Locarno var stofnuð 1946, er gjarnan talin sú virtasta utan toppanna þriggja (Cannes, Feneyja og Berlínar) og fer fram 5. til 15. ágúst næstkomandi. Á öðrum degi hátíðarinnar verða Sigurjóni veitt heiðursverðlaunin en jafnframt verða tvær myndir sem hann framleiddi sýndar, Wild at Heart (1990) og Zidane, A 21st Century Portrait (2006). Sigurjón Sighvatsson á að baki fjögurra áratuga feril í kvikmyndagerð og er einn fárra Íslendinga sem hefur tekist að skapa sér farsælan feril í Hollywood. Vestanhafs byrjaði Sigurjón í tónlistarmyndbandagerð, vann síðan náið með David Lynch að Twin Peaks (1990-91) og Wild at Heart (1990), framleiddi hina geysivinsælu Beverly Hills 90210 (1990-2000) og hefur gegnum tíðina unnið með leikstjórum á borð við Nicolas Winding Refn, Kathryn Bigelow og Taylor Sheridan. Mótaði þróun kvikmyndagerðar tíundar áratugarins Giona A. Nazzaro, listrænn stjórnandi Locarno-hátíðarinnar, sagði verk Sigurjóns einkennast af „djúpu evrópsku sjónarhorni“ en þau væru um leið „á kafi í gangverki bandaríska iðnaðarins.“ „Sigurjón „Jonni“ Sighvatsson mótaði sanna „politique du producteur“ sem gerði listamönnum á borð við David Lynch kleift að skapa verk sín í algjöru frelsi og styðja við höfunda á borð við Kathryn Bigelow til að gera persónulegustu myndir ferils síns,“ sagði Nazzaro. Hugtakið „politique du producteur“ íslenskast sem „stefna framleiðandans“ en þar er átt við kerfi þar sem framleiðandinn er þungamiðja listrænnar mótunar. Sigurjón hefur komið að framleiðslu fjölmargra Hollywood-kvikmynda sem og íslenskra kvikmynda.Vísir/Vilhelm „Innsæi hans sem framleiðanda hafði djúp áhrif á þróun kvikmynda tíunda áratugarins og viðhorf hans til að stuðla að frumleika og sjálfstæði gerði hann að viðmiðunarpunkti fyrir heila kynslóð kvikmyndagerðarmanna sem horfðu til verka Sighvatssonar sem fyrirmyndar dirfsku, heiðarleika, sköpunargáfu og framsýnar,“ sagði hún. Fyrri verðlaunahafar Raimondo Rezzonico-verðlaunanna eru líbanska framleiðslufyrirtækið Abbout Productions, Jason Blum hjá hryllingsframleiðslufyrirtækinu Blumhouse og framleiðadinn Marianne Slot sem tengist Íslandi nánum böndum.
Bíó og sjónvarp Sviss Kvikmyndagerð á Íslandi Tengdar fréttir Sigurjón minnist David Lynch: „Jonni, við verðum að gera eitthvað fyrir Ísland“ Sigurjón Sighvatsson minnist vinar síns, David Lynch, sem eins áhrifamesta kvikmyndaleikstjóra sögunnar. Lynch hafi verið prívat maður sem þoldi ekki neikvæðni og var alltaf langt á undan sinni samtíð. 19. janúar 2025 09:02 Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Fleiri fréttir Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira
Sigurjón minnist David Lynch: „Jonni, við verðum að gera eitthvað fyrir Ísland“ Sigurjón Sighvatsson minnist vinar síns, David Lynch, sem eins áhrifamesta kvikmyndaleikstjóra sögunnar. Lynch hafi verið prívat maður sem þoldi ekki neikvæðni og var alltaf langt á undan sinni samtíð. 19. janúar 2025 09:02