Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Samúel Karl Ólason skrifar 10. júní 2026 08:32 Frá nýlegri heræfingu á Eystrasaltshafi. Varnir innviða á svæðinu eru sérstaklega mikilvægar og viðbrögð við fjölþátta ógnum. EPA/TOMS KALNINS Varðberg, pólska sendiráðið á Íslandi og utanríkisráðuneytið standa í dag að málþingi í Norræna húsinu, þar sem fjallað verður um um öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu. Ísland tekur í júlí við formennsku í Eystrasaltsráðinu (CBSS) af Pólverjum.
Málþingið ber yfirskriftina „Öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu og víðar“. Þar verður farið yfir helstu áskoranir og tækifæri ríkja á svæðinu, eins og vernd innviða, viðbrögð við fjölþáttaógnum, truflanir á GPS-sendingum og fleira. Einnig verða kynnt helstu áherslumál Íslands í formennskunni sem hefst í sumar. Leggaj á áherslu á aukið samstarf, sjálfbærni og svæðisbundna samkennd. Meðal fyrirlesara eru Radosławs Sikorski aðstoðarforsætisráðherra og utanríkisráðherra Póllands; Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Íslands; Artur Harazim aðstoðarutanríkisráðherra Póllands; Jónas G. Allansson, sviðsstjóri varnarmála í íslenska utanríkisráðuneytinu; Anna Hjartardóttir, sviðsstjóri alþjóðamála í utanríkisráðuneyti Íslands; Gustav Lindström framkvæmdastjóri CBSS; og Katarzyna Barcikowska formaður embættismannanefndar CBSS. Horfa má á fundinn í spilaranum hér að neðan. Frekari upplýsingar um málþingi má svo finna hér á vef Varðbergs. Dagskrá 09:00–09:30 Húsið opnar — Léttar veitingar í boði í anddyri. Viðburðinum lýkur upp úr hádegi. 09:30–10:00 Setning málþingsAleksander Kropiwnicki, yfirmaður sendiskrifstofu Póllands á Íslandi Ávarp (upptaka): Radosław Sikorski aðstoðarforsætisráðherra og utanríkisráðherra Póllands, ávarpar gesti. Erindi: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra: Áherslur í formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu (2026–2027) 10:00–10:40 Pallborð: Eystrasaltsráðið: Pólitískar áherslur og samstarf Artur Harazim, aðstoðarutanríkisráðherra Póllands. Anna Hjartardóttir, skrifstofustjóri alþjóða- og öryggismálaskrifstofu, utanríkisráðuneyti Íslands. Gustav Lindström, framkvæmdastjóri skrifstofu Eystrasaltsráðsins í Stokkhólmi. Málstofustjóri: Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs. 10:40–11:00 Kaffihlé 11:00–11:40 Pallborð: Öryggismál á Eystrasaltssvæðinu og víðar Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, utanríkisráðuneyti Íslands Katarzyna Barcikowska, formaður embættismannanefndar Eystrasaltsráðsins, utanríkisráðuneyti Póllands Málstofustjóri: Aleksander Kropiwnicki, sendifulltrúi 11:40–12:30 Léttur hádegisverður í boði skipuleggjanda Þátttakendur Radosław Sikorski, aðstoðarforsætisráðherra og utanríkisráðherra Póllands, er útskrifaður frá Oxford og fyrrverandi stríðsfréttaritari. Hann hefur gegnt embætti varnarmála- og utanríkisráðherra, forseta pólska þingsins (Sejm) og þingmanns á Evrópuþinginu. Hann var meðal stofnenda Austur-samstarfs ESB og leiddi friðarviðræður í Kænugarði árið 2014. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur gegnt embætti utanríkisráðherra Íslands frá því í desember 2024. Hún hefur setið á Alþingi í yfir tvo áratugi, gegnt ýmsum ráðherraembættum og hefur víðtæka reynslu af alþjóðamálum, þar á meðal samstarfi í gegnum EFTA, EES, NATO og víðar. Jónas G. Allansson er skrifstofustjóri varnarmála í utanríkisráðuneytinu. Hann hefur víðtæka reynslu af alþjóðlegum öryggismálum og erindrekstri og hefur gegnt æðstu stöðum í sendiskrifstofum Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og NATO, auk þess að sinna málefnum norðurslóða, viðbrögðum við neyðarástandi og alþjóðlegu öryggissamstarfi. Artur Harazim er aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Póllands. Hann hefur yfirumsjón með tvíhliða samstarfi í Evrópu, ræðismálum og samningamálum, auk neyðarstjórnunar. Harazim var áður sendiherra í Belgíu og hefur gegnt æðstu leiðtogastöðum í erindrekstri frá því hann hóf störf í ráðuneytinu árið 1993. Katarzyna Barcikowska er formaður embættismannanefndar Eystrasaltsráðsins, landsfulltrúi Póllands fyrir stefnu ESB fyrir Eystrasaltssvæðið og yfirmaður fjölþjóðlegrar Eystrasaltsdeildar í Evrópustefnusviði utanríkisráðuneytis Póllands. Anna Hjartardóttir er skrifstofustjóri alþjóða- og stefnumótunarskrifstofu í utanríkisráðuneytinu. Hún hefur yfir 20 ára reynslu af erindrekstri og alþjóðlegri þróunarsamvinnu og hefur starfað í utanríkisráðuneytinu, hjá Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) og Alþjóðabankanum. Gustav Lindström er framkvæmdastjóri Eystrasaltsráðsins, skipaður árið 2024 eftir að hafa gegnt starfi aðstoðarframkvæmdastjóra. Hann stýrði áður Öryggismálastofnun Evrópusambandsins og gegndi æðstu stöðum hjá GCSP, RAND og Alþjóðabankanum. Hann er með doktorspróf frá RAND og meistarapróf frá Stanford. Davíð Stefánsson er formaður Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál. Hann rekur eigið ráðgjafarfyrirtæki á sviði viðskiptaþróunar á sviði innviða, orku og verkefnafjármögnunar. Hann er með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu frá Harvard-háskóla. Aleksander Kropiwnicki er pólskur erindreki og yfirmaður sendiskrifstofu Póllands á Íslandi frá janúar 2025. Hann lauk heimspekiprófi frá Háskólanum í Varsjá. Frá 1987 til 2001 starfaði hann sem blaðamaður uns hann hóf feril í utanríkisþjónustu Póllands. Frá 2017 til 2020 var hann sendiherra landsins í Eþíópíu.
Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Pólland Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Sjá meira