Einkunnir íslensku stelpnanna: Linda kom með smá líf í seinni Íþróttadeild Sýnar skrifar 9. júní 2026 21:14 Linda Líf Boama fagnar marki sínu i kvöld en þetta var hennar fyrsta mark fyrir A-landsliðið. Vísir/Anton Brink Vísir fer yfir frammistöðu íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta í 6-1 tapi á móti Spáni í undankeppni HM.
Íslensku stelpurnar voru nokkrum númerum of litlar á móti besta landsliði heims á Laugardalsvellinum í kvöld. Íslenska liðið hafði að engu að keppa nema að sýna að þær ættu eitthvað í heimsmeistarana en raunin var allt önnur. Íslenska liðið átti hræðilegan fyrri hálfleik en náði að bíta aðeins frá sér í þeim seinni og skora þá eitt mark. Spænska liðið var komið í 1-0 eftir aðeins fimm mínútur og yfirspilaði íslenska liðið fram að hálfleik. Yfirburðirnir voru aðeins minni eftir hlé en samt miklir. Varamaðurinn Linda Líf Boama átti fína innkomu í seinni hálfleik og var besti maður íslenska liðsins. Linda skoraði sitt fyrsta landsliðsmark eftir góðan undirbúning Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur sem tók sig á í seinni hálfleik eftir mjög dapran fyrri hálfleik. Einkunnir íslensku stelpnanna á móti Spáni: Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður [5] Fékk sex mörk á sig og bar ábyrgð á sjötta markinu en varði nokkrum sinnum mjög vel og kom í veg fyrir enn stærra tap. Diljá Ýr Zomers, hægri bakvörður [5] Leysti sitt prýðilega og kom nokkrum sinnum í veg fyrir að verr færi með góðum inngripum. Guðrún Arnardóttir, miðvörður [4] Gerði ekki mikið af mistökum en gerði sig sömuleiðis ekki mjög gildandi. Glódís Perla Viggósdóttir, miðvörður [5] Mjög örugg í flestum sínum aðgerðum en sofandi á verðinum í þriðja markinu. Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður [3] Lét teyma sig út úr vörninni í fyrsta marki Spánar og var steinsofandi í öðru markinu. Sædís Rún Heiðarsdóttir, vinstri bakvörður [3] Átti mjög erfitt uppdráttar í leiknum. Svaf á verðinum í fyrsta marki Spánar, var langt á eftir sínum manni í þriðja markinu og út úr stöðu í fimmta markinu. Ída Marín Hermannsdóttir, miðjumaður [3] Átti erfitt uppdráttar á miðjunni og lék einungis fyrri hálfleik. Alexandra Jóhannsdóttir, miðjumaður [4] Ansi erfitt verkefni að elta nokkra af bestu miðjumönnum heims í 90 mínútur. Komst oftast ekki nálægt þeim, missti af sínum manni í fimmta markinu en var einkar vinnusöm. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, miðjumaður [6] Átti erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik en komst meira í boltann í þeim síðari. Vann boltann glæsilega og lagði í kjölfarið upp mark Íslands með laglegum hætti. Sandra María Jessen, framherji [4] Komst ekkert í takt við leikinn í fyrri hálfleik en var meira áberandi í þeim síðari, ógnaði meira. Thelma Karen Pálmadóttir, framherji [3] Komst engan veginn í takti við leikinn og var tekin af velli í hálfleik. Varamenn: Linda Líf Boama kom inn á fyrir Thelmu Karen Pálmadóttur á 46. mínútu. [7] Lét strax til sín taka og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark eftir gott hlaup og afgreiðslu. Hildur Antonsdóttir kom inn á fyrir Ídu Marín Hermannsdóttur á 46. mínútu. [5] Kom með aðeins meiri kraft og dugnað á miðjuna í síðari hálfleik. Arna Eiríksdóttir kom inn á fyrir Ingibjörgu Sigurðardóttur á 61. mínútu. [5] Hlín Eiríksdóttir kom inn á fyrir Diljá Ýr Zomers á 61. mínútu. [4] Birta Georgsdóttir kom inn á fyrir Söndru Maríu Jessen á 77. mínútu.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Fjögurra áratuga bið á enda hjá Mexíkóum Fótbolti Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Fótbolti Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Fótbolti Heimsmeistari hleypur Laugaveginn Sport Verður áfram í Þýskalandi Fótbolti Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Fleiri fréttir Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fjögurra áratuga bið á enda hjá Mexíkóum Ólýsanleg sorg fyrirliðans Verður áfram í Þýskalandi Koeman hættir með Holland Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Tugir þúsunda ærðust á Ullevaal Haaland hetjan og Norðmenn mæta Brössum Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Dansaði gleðidans eftir að Íran datt úr leik Hótað lífláti og öryggisgæslan stóraukin Undir rannsókn fyrir nauðgun á miðju heimsmeistaramóti Særingalæknirinn frá Gana beinir göldrum sínum að Messi og félögum Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast Maður dagsins á HM: Fagnaði sigri á móti fyrirmyndinni Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjáðu Atla afgreiða Skagamenn og færa Framara nær KR Allir Paragvæar fá frí í dag til að fagna Segir upp sem þjálfari tékkneska landsliðsins Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Hollendingar klikkuðu á þremur vítum og eru á leið heim af HM Lárus Orri Sigurðsson: ,,Erum ekki í Evrópubaráttu” Helgi Sigurðsson: ,,Mér fannst við vinna þennan leik mjög sanngjarnt” Stórsigur Aftureldingar og hrun Ægis Paragvæ sló út dapurt þýskt lið Heldur efsta sæti deildarinnar Sjá meira