Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Andri Broddason skrifar 25. september 2026 12:01 Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, ætlar að mæta í leikinn með kassann uppi. Vilhelm/Vísir Aðeins þrjú ár eru síðan Valur vann Bestu deild kvenna og tvö ár eru síðan liðið var einu stigi frá Breiðablik sem endaði á að tryggja sér titilinn. Nú er staðan önnur og situr Valur í neðsta sæti Bestu deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir.
Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, er bjartsýn fyrir leikinn og þykir best að spila leiki þar sem mikið er undir. Það skiptir því minna máli að leikurinn sé upp á titil eða fall. „Ég er bara mjög spennt fyrir þessum leik og hef trú á mínu liði. Mér hefur alltaf fundist gaman að spila leiki sem skipta miklu máli og þetta er klárlega einn af þeim.“ Valur hefur aldrei fallið úr efstu deild kvenna í fótbolta og er því um mikilvægan leik fyrir félagið að ræða. Málfríður Anna reynir ekki að hugsa mikið um það og reynir einungis að hugsa um einn leik í einu og fá úrslit. „Ég hafði hugsað mér að vera ekki að pæla í stöðunni fyrir leikinn. Við vitum hvaða máli þessi leikur skiptir og við ætlum ekki að breyta neinu í undirbúningnum. Ég ætla bara að mæta í leikinn með kassann uppi ásamt mínu liði.“ Þrátt fyrir stöðu liðsins segir Málfríður Anna að það sé stemning í hópnum og að það sé ekki erfitt að peppa mannskapinn í leikina þrátt fyrir erfitt gengi. „Við vitum allar að við eigum eitthvað inni og við erum allar vel gíraðar í að sýna hvað við eigum inni og láta ljós okkar skína,“ sagði Málfríður Anna sem hefur mikla trú á sínum liðsfélögum. Leikurinn í kvöld er gegn Víkingi og er aðeins eitt stig sem skilur liðin að. Þrátt fyrir að lið Víkinga sé á erfiðum stað í deildinni ber Málfríður virðingu fyrir liðinu og býst við erfiðum leik í kvöld. „Við höfum spilað hörkuleiki við þær í sumar þannig ég býst við hörkuspennandi leik. Það þurfa allir í liðinu að vera á deginum sínum til þess að fá sigur en við höfum fulla trú á að við náum því.“
Fótbolti Besta deild kvenna Íslenski boltinn Valur Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti KR - Njarðvík | Vinna KR-ingar þriðja leikinn í röð? Körfubolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Sjá meira