Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 10. júní 2026 10:00 Þann 29. ágúst stöndum við frammi fyrir einni mikilvægustu ákvörðun sem þjóðin hefur tekið um framtíð Íslands um langa hríð. Þess vegna langar mig að spyrja: Af hverju eigum við að segja nei? Ekki nei við aðild að Evrópusambandinu. Ekki nei við evrunni. Ekki nei við breytingum á stjórn landsins. Heldur nei við því að fá upplýsingar. Nei við því að sjá hvaða samning Ísland gæti náð. Nei við því að þjóðin fái tækifæri til að taka upplýsta ákvörðun síðar. Það er erfitt að skilja af hverju við ættum að hafna samningi sem enginn hefur enn séð. Þetta er ekki flokkapólitík Þetta mál er stærra en allir stjórnmálaflokkar. Það er stærra en ríkisstjórnir og stærra en eitt kjörtímabil. Þegar við hugsum um framtíð Íslands næstu 50 eða 100 árin á flokkapólitík ekki að ráða ferðinni. Við eigum ekki að spyrja hvað sé best fyrir Viðreisn, Sjálfstæðisflokkinn, Samfylkinguna eða Miðflokkinn. Við eigum að spyrja: Hvað er best fyrir Ísland? Hvað ef samningurinn reynist góður? Hvað ef samningurinn styrkir samkeppnishæfni Íslands? Hvað ef hann opnar ný tækifæri fyrir ungt fólk? Hvað ef hann eykur möguleika íslenskra fyrirtækja á stærri mörkuðum? Hvað ef hann styrkir stöðu Íslands gagnvart náttúruhamförum, netógnum og öðrum áskorunum framtíðarinnar? Og ef samningurinn reynist ekki þjóna hagsmunum Íslands? Þá segir þjóðin einfaldlega nei. Það er einmitt tilgangurinn með því að ljúka viðræðum. Að fá staðreyndir á borðið áður en endanleg ákvörðun er tekin. Hagsmunir ungs fólks skipta mestu Við eigum að horfa sérstaklega til þeirra sem eru að hefja búskap, stofna fyrirtæki og byggja framtíð sína. Ungir Íslendingar búa við hærri vexti, meiri verðbólgu og meiri óvissu en margir jafnaldrar þeirra í Evrópu. Þeir eiga erfiðara með að eignast húsnæði og fyrirtæki greiða hærri fjármagnskostnað en samkeppnisaðilar þeirra víða annars staðar. Er ekki eðlilegt að kanna hvort hægt sé að bæta þessi skilyrði? Er ekki eðlilegt að skoða hvaða tækifæri felast í nánara samstarfi við okkar mikilvægasta markað og almennt með sterkari stöðu gangvart mörkuðum heimsins? Öryggi skiptir meira máli en áður Heimurinn hefur breyst. Stríð hefur snúið aftur til Evrópu. Spenna eykst á Norðurslóðum. Við höfum sjálf upplifað eldgos, jarðhræringar og náttúruhamfarir sem geta kostað þjóðina hundruð milljarða. Er ekki skynsamlegt að kanna hvort samningur geti styrkt stöðu Íslands þegar kemur að öryggi, viðbúnaði og alþjóðlegu samstarfi? Kæru landar. Áður en sagt er nei í ágúst er mikilvægt að spyrja: Af hverju eigum við ekki fyrst að sjá samninginn? Höfundur er viðskiptafræðingur og áhugamaður um farsæld á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þorvaldur Ingi Jónsson Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Þann 29. ágúst stöndum við frammi fyrir einni mikilvægustu ákvörðun sem þjóðin hefur tekið um framtíð Íslands um langa hríð. Þess vegna langar mig að spyrja: Af hverju eigum við að segja nei? Ekki nei við aðild að Evrópusambandinu. Ekki nei við evrunni. Ekki nei við breytingum á stjórn landsins. Heldur nei við því að fá upplýsingar. Nei við því að sjá hvaða samning Ísland gæti náð. Nei við því að þjóðin fái tækifæri til að taka upplýsta ákvörðun síðar. Það er erfitt að skilja af hverju við ættum að hafna samningi sem enginn hefur enn séð. Þetta er ekki flokkapólitík Þetta mál er stærra en allir stjórnmálaflokkar. Það er stærra en ríkisstjórnir og stærra en eitt kjörtímabil. Þegar við hugsum um framtíð Íslands næstu 50 eða 100 árin á flokkapólitík ekki að ráða ferðinni. Við eigum ekki að spyrja hvað sé best fyrir Viðreisn, Sjálfstæðisflokkinn, Samfylkinguna eða Miðflokkinn. Við eigum að spyrja: Hvað er best fyrir Ísland? Hvað ef samningurinn reynist góður? Hvað ef samningurinn styrkir samkeppnishæfni Íslands? Hvað ef hann opnar ný tækifæri fyrir ungt fólk? Hvað ef hann eykur möguleika íslenskra fyrirtækja á stærri mörkuðum? Hvað ef hann styrkir stöðu Íslands gagnvart náttúruhamförum, netógnum og öðrum áskorunum framtíðarinnar? Og ef samningurinn reynist ekki þjóna hagsmunum Íslands? Þá segir þjóðin einfaldlega nei. Það er einmitt tilgangurinn með því að ljúka viðræðum. Að fá staðreyndir á borðið áður en endanleg ákvörðun er tekin. Hagsmunir ungs fólks skipta mestu Við eigum að horfa sérstaklega til þeirra sem eru að hefja búskap, stofna fyrirtæki og byggja framtíð sína. Ungir Íslendingar búa við hærri vexti, meiri verðbólgu og meiri óvissu en margir jafnaldrar þeirra í Evrópu. Þeir eiga erfiðara með að eignast húsnæði og fyrirtæki greiða hærri fjármagnskostnað en samkeppnisaðilar þeirra víða annars staðar. Er ekki eðlilegt að kanna hvort hægt sé að bæta þessi skilyrði? Er ekki eðlilegt að skoða hvaða tækifæri felast í nánara samstarfi við okkar mikilvægasta markað og almennt með sterkari stöðu gangvart mörkuðum heimsins? Öryggi skiptir meira máli en áður Heimurinn hefur breyst. Stríð hefur snúið aftur til Evrópu. Spenna eykst á Norðurslóðum. Við höfum sjálf upplifað eldgos, jarðhræringar og náttúruhamfarir sem geta kostað þjóðina hundruð milljarða. Er ekki skynsamlegt að kanna hvort samningur geti styrkt stöðu Íslands þegar kemur að öryggi, viðbúnaði og alþjóðlegu samstarfi? Kæru landar. Áður en sagt er nei í ágúst er mikilvægt að spyrja: Af hverju eigum við ekki fyrst að sjá samninginn? Höfundur er viðskiptafræðingur og áhugamaður um farsæld á Íslandi.
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun