Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Lovísa Arnardóttir skrifar 11. júní 2026 11:07 Nú er Nóa kroppið á svipuðu verði og það var síðasta vor. Samsett Nói Síríus hefur lækkað verð á öllum súkkulaðivörum sínum um tíu prósent. Verðlækkunin tók gildi 1. júní og nær jafnt til innlendra og erlendra vörumerkja fyrirtækisins.
Sjá má í verðlagseftirliti ASÍ að Nóa rjómasúkkulaði, 150 grömm, kostaði þannig í Bónus fyrir tveimur dögum 535 krónur en 595 krónur í maí. Verðið er nú svipað og það var í júlí 2025 þegar súkkulaðistykkið kostaði 529. Til samanburðar kostaði stykkið 359 krónur í september árið 2023. Ef skoðaðar eru 460 gramma súkkulaðirúsínur og verðið á þeim í Krónunni má sjá að pokinn kostaði í júní 1079 krónur en 1199 í maí. Verðið er nú svipað, í Krónunni, og það var í september 2025 þegar pokinn kostaði 1099 krónur. Til samanburðar kostaði pokinn 749 krónur í júní 2023. Ef skoðað er verð á Nóa kroppi, 240 gramma poka, í Bónus, má sjá svipaða sögu. Pokinn kostar nú 773 krónur en kostaði í maí 859 krónur. Verðið er nú svipað og það var í júní 2025 þegar pokinn kostaði 759 krónur. Til samanburðar kostaði hann 559 krónur í september 2023. Hrun á heimsmarkaðsverði Töluvert hefur verið fjallað um hærra verð á súkkulaði síðustu ár og mánuði vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði á kakói. Verðið hrapaði um páskana en hefur hækkað örlítið frá þeim tíma. Framkvæmdastjórar Nóa Síríus og Freyju sögðust um páskana ekki getað lækkað verðið strax en boðuðu verðlækkanir með sumrinu. Í tilkynningu frá Nóa Síríus segir að undanfarin ár hafi verið fordæmalaus í verðlagningu á hrávöru til súkkulaðiframleiðslu. Þurrkar og erfið ræktunarskilyrði á helstu kakósvæðum heimsins hafi haldið heimsmarkaðsverði á kakói og kakósmjöri í sögulegum hæðum, sem hafi kallað á verðhækkanir hjá framleiðendum víða um heim. Nú hafi dregið úr þessum þrýstingi og það, ásamt hagræðingu og bættum framleiðsluferlum, hafi skapað svigrúm hjá þeim til að lækka verð. „Þegar hrávöruverð hækkaði lögðum við mikið á okkur til að mæta auknum kostnaði með hagræðingu, breyttum verkferlum og stöðugum samskiptum við birgja og viðskiptavini. Það varð til þess að verð hjá okkur hækkaði minna en sem nam breytingum á heimsmarkaðsverði. Nú þegar verð á helsta hráefninu í framleiðslunni er stöðugra viljum við stíga fyrstu skref í að skila ávinningi áfram til viðskiptavina,“ segir Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Síríus, í tilkynningunni. Fjallað var um það í mars á þessu ári að sjóður í stýringu Alfa framtaks hefði samið við norska matvælaframleiðslurisann Orkla Snacks um kaup á öllu hlutafé í sælgætisgerðinni Nóa Siríus. Orkla gekk frá kaupum á Nóa Siríus árið 2021 og því var fyrirtækið aftur komið í innlenda eigu.
Verðlag Sælgæti Matvöruverslun Verslun Neytendur Fjármál heimilisins Tengdar fréttir Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Matvara hefur hækkað mest á Íslandi í Evrópu undanfarin fimm ár miðað við greiningu Samkeppniseftirlitsins. Stjórnvöld geta gert mun meira til þess að bregðast við þróuninni að mati framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. 10. júní 2026 18:57 Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu. 10. júní 2026 13:03 Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Fjármálaráðherra segir óhjákvæmilegt að atvinnuleysi aukist vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar sem snúa að því að ná tökum á þensluverðbólgu. Hann viðurkennir að betur mætti ganga í efnahagsmálum. 7. júní 2026 18:02 Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Sjá meira
Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Matvara hefur hækkað mest á Íslandi í Evrópu undanfarin fimm ár miðað við greiningu Samkeppniseftirlitsins. Stjórnvöld geta gert mun meira til þess að bregðast við þróuninni að mati framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. 10. júní 2026 18:57
Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu. 10. júní 2026 13:03
Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Fjármálaráðherra segir óhjákvæmilegt að atvinnuleysi aukist vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar sem snúa að því að ná tökum á þensluverðbólgu. Hann viðurkennir að betur mætti ganga í efnahagsmálum. 7. júní 2026 18:02