Flekahreyfingar innan Samfylkingar Sunna Sæmundsdóttir skrifar 11. júní 2026 12:22 Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. Vísir/Anton Brink Hópur félagsmanna Samfylkingar mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar og lýsir krappri hægri beygju sem hafi ekki verið rædd á vettvangi flokksins. Prófessor í stjórnmálafræði segir flekahreyfingar eiga sér stað innan flokksins. Mikil sóknarfæri séu á vinstri væng stjórnmálanna.
Fimmtíu og fimm jafnaðarmenn mótmæla lagasetningunni í aðsendri grein á Vísi í dag og fara fram á að framkvæmdin verði stöðvuð. Þeir lýsa krappri hægri beygju í stefnu Samfylkingar og segja hana í andstöðu við meginstefnu flokksins. Hópurinn krefst þess að Samfylkingin taki málið til formlegrar umræðu á vettvangi flokksins. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir þetta áframhald þróunar sem hófst fyrir síðustu Alþingiskosningar. „Þá færði núverandi formaður flokkinn ansi langt í íhaldsátt þegar kemur að málefnum innflytjenda og hælisleitenda, frá þessari klassísku áherslu jafnaðarmanna á mannréttindi, fjölmenningu, fjölbreytni og mannhelgi,“ segir Eiríkur. Einn núverandi borgarfulltrúi er í hópnum; hinn nýkjörni Stein Olav Romslo en meðal annarra eru fyrrverandi formaður og fyrrverandi ráðherrar, þingmenn og borgarfulltrúar. Eiríkur telur það einföldun að tala um birtingarmynd gömlu Samfylkingarinnar og hinnar nýju, líkt og stundum er talað um. Hér sé um að ræða áherslumun í öllu baklandi flokksins. „Samfylkingarfólk í heild sinni hefur ekki endilega fylgt eftir þessari augljósu stefnubreytingu sem orðið hefur í íhaldsátt og sá klofningur er einfaldlega að kristallast í þessu máli.“ Sóknarfæri til vinstri Hann segir flekahreyfingar eiga sér stað innan flokksins. Samfylkingin hafi sótt nýtt fylgi með breyttum áherslum en á sama tíma sé hluti stuðningsmanna að hugsa sér til hreyfings. „Og það eru alveg mjög mikil sóknarfæri í íslenskum stjórnmálum til vinstri, sem eru ekki með fulltrúa á þingi og þar gæti alveg orðið einhver gerjun. Við höfum séð svona þróun í löndunum í kringum okkur, meðal Sósíaldemókrata í Danmörku sem hafa á einhvern hátt skipt um stuðningshóp. Þetta gæti leitt til einhvers konar umskipta í fylgisstabba flokksins.“
Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Brottfararstöð fyrir útlendinga Alþingi Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira