Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Kjartan Kjartansson skrifar 11. júní 2026 16:01 Þessi skilaboð blöstu við ætluðum netglæpamönnum þegar þeir ætluðu að þvætta illa fengna fjármuni. Þar má sjá merki lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á meðal þeirra stofnana sem tóku þátt í að loka vefsvæðum og leggja hald á netþjóna. Europol Íslensk löggæsluyfirvöld tóku þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð sem beindist að peningaþvætti skipulagðra netglæpahópa í gegnum netþjónustu sem var meðal annars hýst á Íslandi. Enginn var handtekinn á Íslandi í tengslum við málið.
Netþjónustan gekk undir nafninu AudiA6 og er sögð hafa orðið að miðstöð fyrir glæpamenn til þess að leysa illa fengið fé út í rafmyntum. Í gegnum hana eru að minnsta kosti fimmtán glæpahópar taldir hafa þvættað ávinning af svonefndum lausnargjaldstölvuárásum að andvirði rúmlega 336 milljóna evra, jafnvirði rúmra 48,5 milljarða króna, frá 2022 til 2025. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og embætti ríkissaksóknari tóku þátt í aðgerðinni í samvinnu við íslensk hýsingarfyrirtæki. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að íslenskir innviðir hafi verið misnotaðir í glæpastarfseminni. Tveir fulltrúar frá bandarískri löggæslustofnun komu til Íslands. Evrópska lögreglan Europol segir að tveir meintir höfuðpaurar hafi verið handteknir í Georgíu, annar þeirra Rússi en hinn Úkraínumaður. Tuttugu og fimm vefsvæði hafi verið tekin niður og hald lagt á rúmlega þrjátíu netþjóna.
Lögreglumál Netglæpir Efnahagsbrot Rafmyntir og sýndareignir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira