Viðskipti innlent

Festa og Gildi vilja sam­einast

Agnar Már Másson skrifar
Sameinaður lífeyrissjóður yrði sá næststærsti á Íslandi.
Sameinaður lífeyrissjóður yrði sá næststærsti á Íslandi. Vísir/Egill

Lífeyrissjóðirnir Festa og Gildi hyggjast hefja viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Gangi sameiningin eftir yrði nýr sjóður sá næststærsti á landinu með um 1.600 milljarða króna eignir miðað við stöðu sjóðanna í lok síðasta árs.

Frá þessu er greint í sameiginlegri yfirlýsingu frá sjóðunum tveimur sem send var út eftir lokun markaða klukkan 16 í dag. 

Þar segir að í viðræðunum verði meðal annars skoðað hvort sameining sé hagfelldur kostur fyrir sjóðfélaga beggja sjóða sem og hvort sameining geti skilað sér í aukinni stærðarhagkvæmni, bættri þjónustu og enn öflugri sjóði til framtíðar. 

Fyrir liggi að sjóðirnir séu líkir að eðli og uppbyggingu, meðal annars með mjög sambærilegt réttindakerfi og samþykktir. 

Gildi-lífeyrissjóður varð til árið 2005 við sameiningu Lífeyrissjóðsins Framsýnar og Lífeyrissjóðs sjómanna. Festa lífeyrissjóður varð til við sameiningu Lífeyrissjóðs Suðurlands og Lífeyrissjóðs Vesturlands árið 2006.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×