Sport

Ís­land og Dan­mörk mætast í hnefa­leika­hringnum í kvöld

Aron Guðmundsson skrifar
Davíð Rúnar Bjarnason er skipuleggjandi Icebox sem er flottasta hnefaleikakvöld sem haldið er hér á landi og þó víðar væri leitað. 
Davíð Rúnar Bjarnason er skipuleggjandi Icebox sem er flottasta hnefaleikakvöld sem haldið er hér á landi og þó víðar væri leitað. 

Icebox 10 hnefaleikakvöldið fer fram í Ólafssal á Ásvöllum í kvöld og hefur aldrei verið stærra. Beðið er með mikilli spennu eftir viðureignum Íslands og Danmerkur í hringnum. 

„Ég hef nú alltaf haft stóra drauma en ég byrjaði með þetta í miðjum COVID-19 faraldri í fimm hundruð manna takmörkunum og kunni ekki neitt. Einhver staðar þurfti maður að byrja. Þetta er komið á helvíti góðan stað,“ segir Davíð Rúnar Bjarnason skipuleggjandi Icebox 10 sem hefur stækkað ár frá ári og verður sífellt glæsilegra. 

Þetta verður í fyrsta sinn sem Icebox fer fram í Ólafssal á Ásvöllum, nánast uppselt er á kvöldið.

„Þetta er miklu meiri gryfja. Kaplakriki er æði en hérna eru öll sæti með baki, þú situr fyrir ofan og ert að horfa niður á hringinn. Hvert einasta sæti í húsinu er því geggjað. Nánast hvert einasta sæti í húsinu er sömuleiðis farið. Ég hlakka til að taka á móti fullum sal.“

Hvað eru áhorfendur að fara sjá í kvöld?

„Eitthvað nýtt. Ég get lofað ykkur því. Atriði sem hafa ekki sést áður og ólík því sem hafa nokkurn tímann verið. Svo eru að koma Danir hingað. Þrír Danir úr efstu hillu og við setjum okkar menn úr efstu hillu á móti þeim.“

Ísland á móti Danmörku, ekki til sú viðureign tveggja þjóða sem Íslendingar eru spenntari fyrir. 

„Ég vil aldrei flytja inn boxara sem við eigum bara að hlaupa yfir. Þetta er úr efstu hillu. Toppgaurar en við erum líka með toppgaura í hnefaleikunum hjá okkur og bara kominn tími til að setja þetta inn í hring.“

Nánar verður rætt við Davíð Rúnar Bjarnason um Icebox 10 í Sportpakkanum að loknum kvöldfréttum Sýnar. Þá er Icebox 10 í beinni útsendingu á Sýn Sport í kvöld.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×