„Við horfum bjartsýn fram á veg“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 13. júní 2026 14:12 Ólína Kjerúlf er rektor Bifrastar. vísir/aðsend Brautskráning Bifrastar fór fram í dag í Borgarnesi. Aldrei hafa fleiri brautskrást frá skólanum eða 279 manns og því um stærstu útskrift skólans frá upphafi að ræða.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Bifrastar, segir um mikinn gleðidag að ræða. „79 útskriftarefni voru útskrifuð í dag, 175 úr meistaranámi og 65 úr grunnnámi, 39 úr háskólagáttinni. Þannig að þetta var mikil og sannkölluð uppskeruhátíð. Hér skein náttúrulega sólin alveg hreint og fjallafegurðin skartaði sínu dýrðlegasta í tilefni dagsins.“ Hún segir blíðviðrið hafa sett mark sitt á daginn og kveðst hafa það á tilfinningunni að framtíðin sé björt fyrir Bifröst. „Þetta var eins hátíðlegt og það getur orðið. Og við horfum bjartsýn fram á veg. Við fengum fjöldann allan af umsóknum fyrir næsta skólaár. 1100 nýjar umsóknir, þannig að það er útlit fyrir það að núna í haust hafi aldrei verið fleiri nemendur í skólanum heldur en næsta haust.“ Hún segist full bjartsýni til að takast á við næsta skólavetur og kveðst spennt að taka á móti nýjum nemendum. Ólína tók nýlega við sem rektor Bifrastar eftir að Margrét Jónsdóttir Njarðvík sagði af sér í febrúar. Ólína segir það dásamlegt að útskrifa nemendur. „Það er náttúrulega bara mjög góð tilfinning. Ég hef nú stýrt skólastofnunum áður. Þetta er alltaf ánægjulegasta hátíð ársins, það er þegar verið er að útskrifa nemendur og fylgjast með gleðinni og eftirvæntingunni og sjá hvernig sjálfstraustið hefur aukist og hvernig fólk er bara tilbúið að takast á við framtíðina þegar það gengur út með prófskírteinið. Það er bara dásamlegt.“ Í ávarpi sínu í dag velti Ólína upp margvíslegum punktum, til að mynda þegar það kemur að mikilvægi fjarnáms og frelsi vísindastofnanna og menntastofnanna. „Og þar stöndum við Íslendingar frammi fyrir áskorun. Þegar stór hluti ungs fólks, sérstaklega drengja, á í erfiðleikum með læsi, er það ekki einangrað vandamál heldur samfélagslegt áhyggjuefni. Án traustrar undirstöðu á borð við læsi og lesskilning verður aðgengið að háskólum í raun takmarkað, jafnvel þótt dyrnar standi opnar. Þess vegna er fátt brýnna, eins og mál standa, en að huga vel að menntakerfinu svo það geti rækt það grunn hlutverk sitt að mennta fólk á öllum skólastigum og gera það fært um þátttöku í samfélaginu,“ sagði hún meðal annars í ræðu sinni.
Skóla- og menntamál Háskólar Borgarbyggð Mest lesið „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Eftirlitið fellur á herðar foreldra Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Fleiri fréttir Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sjá meira