Grét af vonbrigðum yfir því að hafa ekki stungið sig í hjartað Árni Sæberg skrifar 16. júní 2026 16:29 Ming Ting hefur nú setið í dómsal í einn og hálfan dag og líklegt er að málið dragist á langinn. Vísir/Vilhelm Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að hafa myrt dóttur sína í félagi við eiginmann sinn á Edition-hótelinu í fyrra, grét af vonbrigðum þegar henni var tjáð að henni hefði ekki tekist að stinga sig í hjartað og væri því ekki í lífshættu.
Þetta var meðal þess sem kom fram í skýrslu lögreglumanns sem var meðal fyrstu manna á vettvang, þar sem eiginmaður og dóttir Ming Ting létu lífið. Hann sagðist hafa brugðist við útkalli vegna atviks á hótelinu og farið ásamt félaga á lögreglubíl frá lögreglustöðinni á Hverfisgötu. Á leiðinni hefðu borist upplýsingar um alvarleika atviksins og þeir því fengið heimild til að vopnast skammbyssum, sem þeir hefðu og gert á leiðinni niður eftir. Sýndi nánast engin viðbrögð Þeir hefðu komið að Ming Ting við útidyr herbergisins og hann hefði ekki séð vel inn í herbergið. Þar hefði hún sagt þeim eitthvað á þá leið að hún hefði drepið tvo. Þeir hefði þá fylgt henni á bráðamóttökuna þar sem hann hefði heyrt hana segja við heilbrigðisstarfsmann að eiginmaður hennar hefði verið dauðvona og ekki viljað lifa lengur. Hún hefði ekki viljað lifa án hans og ekki heldur skilja dóttur þeirra eftir eina á lífi. Lögreglumaðurinn sagði að það hefði vakið athygli hans að Ming Ting virtist ekki sýna nein viðbrögð við aðstæðum. Það hefði aðeins verið þegar hjúkrunarfræðingur sagði henni að henni hefði ekki tekist að stinga sig í hjartað sem hún hefði brugðist við. „Eina skiptið sem hún felldi tár var þegar hjúkrunarfræðingurinn sagði henni að hún væri ekki í lífshættu.“ Eyddi öllu úr símanum Þónokkrir lögreglumenn gáfu skýrslu í dag en meðal þeirra var lögreglumaður sem kom að rannsókn tölvugagna á ýmsum stigum málsins. Hann kvaðst hafa farið yfir gögn úr öllum símum sem fundust á vettvangi og úr símum og hörðum diskum sem fundust við húsleit á heimili fjölskyldunnar í Dyflinni. Engin gögn hefðu fundist við rannsókn málsins sem bentu til skipulagningar sjálfsvíga fjölskyldunnar. Þá sagði hann að sími Ming Ting sjálfrar bæri þess merki að hafa verið hreinsaður af öllum gögnum að kvöldi þriðjudagsins 10. júní í fyrra, daginn áður en síðast sást til fjölskyldunnar utan hótelherbergisins. Kom á óvart hversu lélegt öryggiskerfið var Þá kom lögreglumaðurinn sem stýrði rannsókninni einnig fyrir dóminn. Hann sagði meðal annars að það hefði komið honum á óvart að öryggismyndavélakerfi hótelsins hefði í raun verið í „algjörum lamasessi“ og að vegna þess hefði þurft að kalla til sérfræðing í myndvinnslu. Sá hefði eytt mjög drjúgum tíma í að bjarga því sem bjargað varð í þeim efnum. Hann var spurður út í myndefni sem náðist af fjölskyldunni á gangi miðvikudagskvöldið 13. júní, eftir að þau höfðu farið út að borða í nágrenni hótelsins. Hann sagði að miðað við það myndefni hefði fjölskyldan öll virst við góða heilsu og ekkert benti til þess að eiginmaður Ming Ting hefði verið veikur. Þá sagði hann aðspurður að ákveðið hefði verið að láta ekki framkvæma rithandarrannsókn á bréfi sem skilið var eftir á vettvangi, enda væri enginn sérfræðingur í þeim efnum starfandi á landinu og ekki hefði verið talið raunhæft að láta framkvæma slíka rannsókn erlendis. Einnig hefði verið hætt við sviðsetningu atburða eftir að Ming Ting lýsti sig ekki tilbúna til að taka þátt í slíku. Stefna á vettvangsgöngu Aðalmeðferð hefur nú staðið yfir í einn og hálfan dag og áætlað er að hún haldi áfram á fimmtudag. Af samskiptum sækjanda, verjanda og dómenda að dæma verður að telja ólíktlegt að takast muni að ljúka málflutningi þá. Þá kom fram í lok dagsins að stefnt væri að vettvangsgöngu dómara en hún væri þeim vandkvæðum háð að Edition-hótelið virðist fullbókað.
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Reykjavík Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Fleiri fréttir Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Sjá meira