Starfsemi hætt í Kristnesi vegna myglu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 16. júní 2026 20:26 Kristnesspítali í Eyjafjarðarsveit. Sjúkrahúsið á Akureyri Öll starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri verður færð af Kristnesi í Eyjafjarðarsveit og til Akureyrar um óákveðinn tíma. Mygla fannst fyrr á árinu á Kristnesspítala.
Akureyri.net greinir frá því að eftir ítarlega skoðun og greiningu á húsnæðinu þyki ljóst að það sé óhæft fyrir heilbrigðisþjónustu. Starfsemin verður flutt seinna í sumar. Samkvæmt umfjöllun miðilsins hefur SAk verið með endurhæfingarþjónustu í Kristnesi sem þykir ekki forsvaranlegt að halda áfram í ljósi aðstæðna í húsnæðinu. Unnið er að því að koma dag- og göngudeildarhluta þjónustunnar í Kristnesi fyrir í nýju 815 fermetra leiguhúsnæði á Akureyri. Starfsemin þar muni hefjast í september en það á að vera hægt að veita allt að tuttugu skjólstæðingum þjónustu á dag- og göngudeild. Auk þess verði sex legurými fyrir endurhæfingarsjúklinga tekin í notkun á skurðlækningadeild SAk í byrjun ágúst. „Okkur er mikið í mun að standa vörð um endurhæfingarþjónustu sem og aðra þjónustu SAk, þrátt fyrir þessar krefjandi aðstæður í húsnæðismálum, enda er þjónustan sjúklingum og aðstandendum þeirra afar mikilvæg,“ hefur Akureyri.net eftir Guðjóni Haukssyni forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. „Fram undan er umfangsmikið verkefni sem kallar á samvinnu, lausnamiðaða hugsun og sveigjanleika. Innan SAk er til staðar bæði mikil sérfræðiþekking og mikill vilji til að tryggja góða þjónustu. Ég er sannfærður um að með sameiginlegu átaki munum við takast á við þessar áskoranir, samhliða því að leggja grunn að öflugri endurhæfingarþjónustu til framtíðar.“
Sjúkrahúsið á Akureyri Heilbrigðismál Eyjafjarðarsveit Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira