Kos staðfesti ekki tilvist samkomulags Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 17. júní 2026 07:32 Furðuleg frétt var flutt í kvöldfréttatíma Ríkisútvarpsins 9. júní sem því miður var í anda þeirrar gagnrýni sem sett hefur verið fram á það fyrir hlutdrægni í umfjöllun um Evrópumálin. Fullyrt var í inngangi fréttarinnar að Marta Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins, hefði staðfest að samkomulag hefði náðst síðast þegar umsóknarferli Íslands að sambandinu var í gangi um að engin aðlögun ætti sér stað fyrr en samningur um inngöngu í það hefði verið samþykktur. Engin slík staðfesting kom þó fram í máli Kos í fréttinni. Hins vegar staðfesti hún að viðræðurammi Evrópusambandsins vegna umsóknar landsins frá 2010 væri enn í gildi en þar kemur skýrt fram að aðlögun þurfi að eiga sér stað samhliða viðræðunum. Fréttin hófst á þessum orðum Jóhönnu Vigdísar Hjaltadóttur: „Samkomulag um að íslenzk stjórnvöld þyrftu ekki að gera grundvallarbreytingar á stjórnskipun landsins fyrr en eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild lá fyrir í aðildarviðræðunum 2010. Þetta staðfestir stækkunarstjóri Evrópusambandsins.“ Björn Malmquist, fréttamaður Ríkisútvarpsins í Brussel, spurði síðan Kos með eftirfarandi hætti: „Á meðan á fyrri aðlögunarviðræðum stóð var sameiginlegur skilningur á því að Ísland þyrfti ekki að gera grundvallarbreytingar á stjórnkerfi og stofnunum landsins fyrr en eftir þjóðaratkvæði um inngöngu. Heldurðu að slíkur sameiginlegur skilningur gæti orðið aftur komi til þess að aðlögunarviðræður hefjist á nýjan leik?“ Spurði Kos ekki um meint fyrra samkomulag Með öðrum orðum spurði Björn ekki Kos hvort slíkur sameiginlegur skilningur hafi verið í gildi síðast heldur einfaldlega gaf sér það. Í frétt Björns á fréttavef Ríkisútvarpsins fullyrti hann hins vegar að Kos hafi beinlínis sagt að slíkt samkomulag hafi verið til staðar síðast. Svar Kos var annars á þessa leið og var annað ekki haft eftir henni: „Ísland innleiðir þegar stóran hluta af regluverki Evrópusambandsins og varðandi þá aðlögun sem upp á vantar er viðræðuramminn frá 2010 enn grundvöllurinn. Hann felur þegar í sér þann sveigjanleika að aðeins þurfi að innleiða ákveðnar stjórnkerfisbreytingar eftir að endanleg þjóðaratkvæðagreiðsla um inngöngu hefur átt sér stað á Íslandi. Það er í raun íslenzku þjóðarinnar og stjórnvalda að tjá okkur hvernig þau vilja nálgast þetta og Evrópusambandið hefur engin áform um að taka fram fyrir hendurnar á Íslendingum í ákvörðun þeirra í krafti fullveldis síns. En fyrst og fremst er það ákvörðun Íslendinga í þjóðaratkvæðinu í lok ágúst hvort þeir vilja halda viðræðunum áfram. Verði svarið jákvætt getum við hafið samtal um þessi tæknilegu atriði.“ Hvort Evrópusambandið fellur að einhverju marki frá kröfunni um aðlögun verður þannig ekki upplýst nema þjóðin segi fyrst já. Orðalagið „ákveðnar stjórnkerfisbreytingar“ er lykilatriði í þessum efnum. Komið hefur þannig fram áður í gögnum Evrópusambandsins og talsmanna þess að í ákveðnum tilfellum hafi samizt um að nóg væri að leggja fram tímaáætlanir um það hvenær aðlögun ætti sér stað. Þar á meðal í landbúnaðar- og byggðamálum. Öðrum sem sagt ekki. Björn tók síðan til máls og sagði: „Kos segir sem sagt að ramminn um viðræðurnar frá 2010 sé enn til staðar sem viðmið. Hún segir að vísu ekki beinum orðum að samkomulag af þessu tagi gæti legið fyrir hefjist viðræður á nýjan leik.“ Þá sagði Jóhanna: „En Björn, Ísland er í allt annarri stöðu en þau ríki sem eru að sækja um aðild núna og hafa fengið inngöngu á undanförnum árum.“ „Já, það er auðvitað staðreynd. Ég meina, við erum í allt annarri stöðu en til dæmis Svartfjallaland og Albanía sem eru komin hvað lengst í aðildarferlinu um þessar mundir svo ég tali nú ekki um ríkin í Austur-Evrópu sem gengu í klúbbinn 2004 og árunum á eftir. Ég meina… sko… ég sé ekki alveg af hverju svona samkomulag ætti ekki að geta verið gert aftur af því að árið 2010 vorum við búin að vera að innleiða, þú veizt, reglugerðir og tilskipanir frá Evrópusambandinu í einhver 16 ár frá því að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið var staðfestur árið 1994 og við höfum bara verið að því áfram síðan 2010. Þannig að í þeim skilningi og í því samhengi er staða okkar gagnvart Evrópusambandinu nákvæmlega sú sama eins og hún var 2010.“ Höfum tekið upp „stóran hluta“ regluverksins Með þessum hætti lauk Björn fréttinni. Þannig virðist óskhyggja fréttamannanna hafa ráðið för í fréttaflutningnum. Kos staðfesti ljóslega ekkert um meint samkomulag. Hvorki nú né síðast. Það sem hún hins vegar staðfesti var að Ísland hefði aðeins innleitt „stóran hluta“ af regluverki Evrópusabandsins í gegnum EES-samninginn en ekki meirihlutann og að viðræðurammi sambandsins frá 2010 væri sem fyrr grundvöllur viðræðnanna (e. baseline). Ekki einungis viðmið eins og Björn kaus að orða það. Í textun viðtalsins var þó talað um grundvöll. Á þessu er auðvitað grundvallarmunur. Í viðræðurammanum segir til dæmis: „Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess, þ.m.t. árangursrík og skilvirk beiting af hálfu viðeigandi stofnana á sviði stjórnsýslu og dómsmála, mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“ Hafa má í huga í þessum efnum að gögn Evrópusambandsins um umsóknarferlið, bæði almennt séð og í tilfelli Íslands á sínum tíma, kveða á um að aðlögun að regluverki og stjórnsýslu sambandsins skuli eiga sér stað samhliða viðræðunum. Ekki aðeins viðræðuramminn sem felur annars í sér umboð Evrópusambandsins í viðræðunum samþykkt af ríkjum þess. Lítið reyndi þó á aðlögunina síðast vegna þess að nánast var ekki annað gert en að semja aftur um þá viðræðukafla sem falla undir EES-samninginn þar sem aðlögun hefur þegar meira eða minna átt sér stað. Undir lokin áður en ferlið var sett á ís var hins vegar komið að köflum sem stóðu utan hans og þar var skýr krafa gerð um aðlögun. Þá óskaði Morgunblaðið fyrr á árinu eftir öllum gögnum frá utanríkisráðuneytinu um meint samkomulag síðast. Engin slík gögn reyndust til í fórum þess. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar