„Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Aron Guðmundsson skrifar 18. júní 2026 10:32 Gunnlaugur Árni hefur átt frábæran undirbúning U.S. Open nú er stóra stundin framundan seinna í dag. Mynd: Golfsamband Íslands Gunnlaugur Árni Sveinsson mun í dag opna nýjan kafla í íslenskri íþróttasögu er hann verður fyrsti íslenski kylfingurinn til að spila á U.S. Open risamótinu í golfi í karlaflokki. Gunnlaugur hefur komist hátt í háskólagolfinu í Bandaríkjunum og unnið sig í gegnum mikla erfiðleika í aðdraganda mótsins.
Gunnlaugur er á meðal fremstu áhugakylfinga í heimi og með LSU háskólanum hefur hann gert sig gildandi undanfarin tvö ár. Þessi tvítugi strákur ætlar sér langt í íþróttinni og í gegnum bráðabana á lokaúrtökumóti á dögunum tryggði hann sér sæti á U.S. Open. Gunnlaugur hefur leik á U.S. Open klukkan 18.20 í kvöld en bein útsending frá mótinu hefst klukkan fjögur á Sýn Sport. Íslendingurinn flaug hátt strax á sínu fyrsta ári í háskólagolfinu en hefur mátt þola hindranir, erfiðleika, á sínu öðru ári. „Hann hefur átt erfitt vor. Það hafa átt sér stað hlutir sem hann hefur enga stjórn á,“ segir Jake Amos, þjálfari Gunnlaugs í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Hann var frábær síðasta haust þegar að tímabilið hjá okkur byrjaði, vann til að mynda mót og endaði í topp tíu á öðru móti. Hann var á góðri siglingu en svo greip lífið inn í. Hann varð veikur, það varð fráfall í fjölskyldu hans og svo meiddist hann. Það var þá sem hann lærði mikið um sjálfan sig, upplifði mótlæti og sá að ekki alltaf yrði um ljúfa og fullkomna siglingu að ræða. Gunnlaugur Árni í raun náði ekki sínu besta fram á vellinum fyrr í síðustu tveimur umferðum okkar á tímabilinu bara í þar síðustu viku. Það að hann hafi síðan mætt viku seinna og sýnt þessa frammistöðu sem hann sýndi í lokaúrtökumótinu sýnir okkur að hann hefur andlega séð komist yfir alla þá erfiðu hluti sem hentu hann í vor. Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari.“ Í dag reynir hann svo fyrir sér á einu af risamótum hvers árs í golfheiminum þar sem að allir bestu kylfingarnir verða. Gunnlaugur hefur fengið dýrmæta reynslu í æfingarhringjum með nokkrum af þeim bestu á borð við Scottie Scheffler, Bryson DeChambeau og Patrick Reed. „Ég tel að hann muni ekki láta það koma sér úr jafnvægi að vera í kringum þessar stjörnur. Hann verður sér til sóma. Ég sagði það við hann að láta sér ekki koma það á óvart ef einhverjir kylfingar á mótinu staldri við þegar að hann slær boltann. Hann er það góður.“
Opna bandaríska Tengdar fréttir Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Gunnlaugur Árni Sveinsson þarf að eiga meira en góð högg til að hitta flatirnar á Shinnecock Hills, þegar hann verður fyrstur Íslendinga til að keppa á Opna bandaríska mótinu í golfi á morgun. Hann býr núna að góðum ráðum frá Patrick Reed sem þekkir það að vinna risamót. 17. júní 2026 15:29 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Gunnlaugur Árni Sveinsson er klár í stóra sviðið sem U.S. Open risamótið í golfi er. Þetta segir þjálfari hans við LSU háskólann í Bandaríkjunum. Gunnlaugur sé með nálgun atvinnumanns og geti nú sýnt heiminum hversu góður kylfingur hann sé. 17. júní 2026 08:02 Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Gunnlaugur Árni Sveinsson verður á fimmtudaginn kemur fyrsti Íslendingurinn til þess að spila á U.S. Open risamótinu í golfi í karlaflokki. Um fyrsta risamót Gunnlaugs er jafnframt að ræða og er ráshópur hans fyrir fyrstu tvo keppnisdaga mótsins klár. 16. júní 2026 23:00 „Töluvert öðruvísi golf sem er spilað núna“ Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur fengið góðan undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið en segist vera að labba inn í öðruvísi aðstæður en hann er vanur. 16. júní 2026 12:32 Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson fær nú umtalsvert meiri athygli frá fjölmiðlum og viðskiptatengdum aðilum nú þegar dregur nær fyrsta risamóti hans á ferlinum. Umboðsmaður Gunnlaugs segir hann með báða fætur á jörðinni. 16. júní 2026 07:03 Gunnlaugur æfði óvænt með DeChambeau og Reed Gunnlaugur Árni Sveinsson fær frábæran undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Fyrir æfingahringinn með besta kylfingi heims fékk hann óvænt að æfa með Bryson DeChambeu og Patrick Reed. 15. júní 2026 11:29 Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Gunnlaugur Árni Sveinsson varð á dögunum fyrsti íslenski kylfingurinn til að tryggja sig inn á US Open risamótið í karlaflokki. Kappinn fann á sér á keppnisdeginum að þetta yrði hans dagur, mótlæti braut hann ekki, heldur efldist hann bara við það. Mót með þeim bestu í heimi bíður. 11. júní 2026 10:01 Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor „Þetta er svo ofsalega stórt og ég held að maður átti sig ekki alveg á þessu fyrr en mótið rennur upp eftir rúma viku,“ segir Sveinn Kristinn Ögmundsson, pabbi Gunnlaugs Árna sem fyrstur íslenskra karla vann sig inn á Opna bandaríska mótið í golfi. Foreldrar Gunnlaugs Árna mættu í Bítið á Bylgjunni, eðlilega að rifna úr stolti. 10. júní 2026 09:37 Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Gunnlaugur Árni Sveinsson tryggði sér í fyrradag, fyrstur Íslendinga, sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í karlaflokki eftir bráðabana á úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Risastór tíðindi sem koma þó ekki einum helsta golfsérfræðingi landsins á óvart. Þetta sé ekki endastöð hjá Gunnlaugi, bara byrjunin. 10. júní 2026 07:30 Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Gunnlaugur Árni vann Arnold Palmer-bikarinn Tveir íslenskir kylfingar í efstu tíu sætunum Bjargaði fugli úr tjörn í miðjum golfhring Fá að skoða sjúkraskrár Tigers Woods Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Hvorki Haraldur né Gunnlaugur fara á Opna breska Víkingaróður Norðmanna kominn inn í golfið líka Sæti á risamóti í boði hjá Haraldi og Gunnlaugi Mickelson sýndi eiginkonu keppinautar nektarmynd af sér Haraldur Franklín nálgast Opna breska Tiger kom fram opinberlega í fyrsta sinn frá handtökunni frægu „Er mörgum árum á eftir þeim og einn daginn verð ég í þeirra sporum“ PGA kynnir nýtt keppnisfyrirkomulag Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Kom pabba sínum algjörlega á óvart á átjándu holunni á US Open Bauluðu á verðandi US Open meistara Wyndham Clark er sigurvegari U.S. Open Guðrún Brá og Birgir Björn Íslandsmeistarar í holukeppni Sigurinn blasir við Clark en Scheffler lætur sig dreyma Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Clark í sérflokki en þarf að byrja snemma eins og Gunnlaugur Árni Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Sjá meira
Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Gunnlaugur Árni Sveinsson þarf að eiga meira en góð högg til að hitta flatirnar á Shinnecock Hills, þegar hann verður fyrstur Íslendinga til að keppa á Opna bandaríska mótinu í golfi á morgun. Hann býr núna að góðum ráðum frá Patrick Reed sem þekkir það að vinna risamót. 17. júní 2026 15:29
„Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Gunnlaugur Árni Sveinsson er klár í stóra sviðið sem U.S. Open risamótið í golfi er. Þetta segir þjálfari hans við LSU háskólann í Bandaríkjunum. Gunnlaugur sé með nálgun atvinnumanns og geti nú sýnt heiminum hversu góður kylfingur hann sé. 17. júní 2026 08:02
Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Gunnlaugur Árni Sveinsson verður á fimmtudaginn kemur fyrsti Íslendingurinn til þess að spila á U.S. Open risamótinu í golfi í karlaflokki. Um fyrsta risamót Gunnlaugs er jafnframt að ræða og er ráshópur hans fyrir fyrstu tvo keppnisdaga mótsins klár. 16. júní 2026 23:00
„Töluvert öðruvísi golf sem er spilað núna“ Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur fengið góðan undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið en segist vera að labba inn í öðruvísi aðstæður en hann er vanur. 16. júní 2026 12:32
Athyglin mun meiri en Gunnlaugur með báða fætur á jörðinni Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson fær nú umtalsvert meiri athygli frá fjölmiðlum og viðskiptatengdum aðilum nú þegar dregur nær fyrsta risamóti hans á ferlinum. Umboðsmaður Gunnlaugs segir hann með báða fætur á jörðinni. 16. júní 2026 07:03
Gunnlaugur æfði óvænt með DeChambeau og Reed Gunnlaugur Árni Sveinsson fær frábæran undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Fyrir æfingahringinn með besta kylfingi heims fékk hann óvænt að æfa með Bryson DeChambeu og Patrick Reed. 15. júní 2026 11:29
Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Gunnlaugur Árni Sveinsson varð á dögunum fyrsti íslenski kylfingurinn til að tryggja sig inn á US Open risamótið í karlaflokki. Kappinn fann á sér á keppnisdeginum að þetta yrði hans dagur, mótlæti braut hann ekki, heldur efldist hann bara við það. Mót með þeim bestu í heimi bíður. 11. júní 2026 10:01
Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor „Þetta er svo ofsalega stórt og ég held að maður átti sig ekki alveg á þessu fyrr en mótið rennur upp eftir rúma viku,“ segir Sveinn Kristinn Ögmundsson, pabbi Gunnlaugs Árna sem fyrstur íslenskra karla vann sig inn á Opna bandaríska mótið í golfi. Foreldrar Gunnlaugs Árna mættu í Bítið á Bylgjunni, eðlilega að rifna úr stolti. 10. júní 2026 09:37
Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Gunnlaugur Árni Sveinsson tryggði sér í fyrradag, fyrstur Íslendinga, sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í karlaflokki eftir bráðabana á úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Risastór tíðindi sem koma þó ekki einum helsta golfsérfræðingi landsins á óvart. Þetta sé ekki endastöð hjá Gunnlaugi, bara byrjunin. 10. júní 2026 07:30