Unnu sinn besta sigur frá upphafi Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2026 09:22 Ísland hafði betur í slagnum við Kósovó í San Marínó. TSÍ Ísland vann sögulegan sigur gegn Kósovó í tennis á Billie Jean King Cup, landsliðakeppni kvenna, þegar liðin mættust í San Marínó.
Fyrir mótið var Kósovó í 87. sæti heimslistans en Ísland í 113. sæti, sem gerir 2-1 sigur Íslands að þeim fræknasta í sögu kvennalandsliðsins, samkvæmt tilkynningu tennissambandsins. Liðin mættust í 3. deild Evrópu þar sem Anna Soffía Grönholm byrjaði á að vinna Forta Morina með afar öruggum hætti, 6-1 og 6-0. Anna Soffía setti 60% af fyrstu uppgjöfum sínum inn, vann 74% stiga á fyrstu uppgjöf og alls 59 stig gegn 35 hjá andstæðingi sínum. Hún nýtti einnig sjö af fimmtán brotfærum sínum og lagði þannig grunninn að íslenska sigrinum. Lengsti leikur í sögu landsliðsins Bryndís Rósa Armesto Nuevo lék svo seinni einliðaleikinn og fer hann í sögubækurnar sem lengsti einliðaleikur íslenskrar tenniskonu í landsliðsverkefni, því hann stóð yfir í 3 klukkustundir og 4 mínútur. Bryndís Rósa varð að lokum að játa sig sigraða; 4-6, 6-3, 7-6, eftir að hafa fengið samtals 103 stig gegn 104 í leik þar sem staðan sveiflaðist fram og til baka. Úrslitin réðust því í tvíliðaleiknum þar sem þær Anna Soffía og Sofia Sóley Jónasdóttir sameinuðu krafta sína gegn Altea Hajrizi og Aja Broqi. Íslenska parið vann þar, 6-3 og 6-3. Þær unnu 58 stig gegn 41 hjá andstæðingunum, voru með 62% fyrstu uppgjöf og nýttu sex af níu brotfærum sínum. Sigurinn tryggði Íslandi annað sætið í riðlinum og einn eftirminnilegasta sigur í sögu íslensks kvennatennis. Liðið mun nú spila um 5.-8. sæti mótsins. Karlalandsliðið keppir í 4. deild Evrópu í Davis Cup í Armeníu og tapaði þar naumlega fyrir heimamönnum, 2-1. Ísland hefur unnið tvo leiki en tapað einum og á nú eftir leiki við Möltu í dag og Andorra á morgun. Sigur gegn Möltu kæmi Íslandi í baráttu um annað af tveimur efstu sætunum og gæti gert lokaleikinn við Andorra að hreinum úrslitaleik um sæti í 3. deild Evrópu.
Tennis Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Reese rífur í sig metin Körfubolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Haukar fá risavaxinn liðsauka Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Dagskráin í dag: Barist um sæti í Meistaradeild Evrópu Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Sjá meira