Þingið komið í sumarfrí Agnar Már Másson skrifar 19. júní 2026 17:19 Þórunn Sveinbjarnardóttir þingforseti sleit þingfundi í dag. Þingi hefur verið frestað og ganga alþingismenn nú út í sumarfrí. Lengsta umræðan á yfirstöðnu þingi fjallaði um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þing kemur saman á ný 8. september.
Þórunn Sveinbjarnadóttir þingforseti sleit í dag síðastaþingfundi 157. löggjafarþings á fimmta tímanum eftir hádegi í dag, 19. júní. Þingið var að störfum frá 9. september til 18. desember 2025 og svo frá 14. janúar til 19. júní 2026. Meðal mála sem samþykkt voru í dag eru frumvarp Miðflokksins um gildistíma ökuskírteina, frumvarp ríkisstjórnarinnar um jarðakaup erlendra aðila og breytingar á lögum um stimpilgjald. Auk þess lauk umræðu og atkvæðagreiðslu um Stofnun atvinnuveganna sem verður til með sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Skrifstofa Alþingis hefur tekið saman tölfræði um afstaðið þing. Þar segir í tilkynningu að þingfundir hafi samtals verið 131 og staðið í 844 klukkustundir og 21 mínútu. Þingfundadagar voru alls 114. Meðallengd þingfunda var sex klukkustundir og 23 mínútur. Lengsti þingfundurinn stóð í 13 klukkustundir og 27 mínútur. Lengsta umræðan var um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu en hún stóð samtals í 58 klukkustundir og 16 mínútur. Af 188 frumvörpum sem lögð voru fram urðu alls 105 að lögum og 83 voru óútrædd og eitt var ekki samþykkt. Af 95 þingsályktunartillögum voru 22 samþykktar og 73 voru óútræddar. Þá voru 32 skriflegar skýrslur lagðar fram. Sextán beiðnir um skýrslur komu fram, allar til ráðherra. Fjórar munnlegar skýrslur ráðherra voru fluttar. Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 399. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 31 og var 21 svarað en ein kölluð aftur og ein felld niður vegna ráðherraskipta. 368 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 269 þeirra svarað, 15 voru felldar niður vegna ráðherraskipta. 84 biðu svars er þingi var frestað. Þingmál til meðferðar í þinginu voru 729 og tala prentaðra þingskjala við þingfrestun var 1460. Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 267 og sérstakar umræður nítján talsins. Samtals höfðu verið haldnir 500 fundir hjá fastanefndum þegar þingi var frestað. Samkvæmt starfsáætlun er þingsetning 158. löggjafarþings 8. september.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira