Staða helstu viðskiptavina JBT-Marels sterkari núna en fyrir nokkrum árum
Afleiðingarnar af stríðsátökunum við Persaflóa hefur gert rekstrarumhverfi JBT-Marels erfiðara, meðal annars vegna áskorana í flutningum og verðhækkana á orku, en félagið er samt talsvert undirverðlagt á markaði, samkvæmt nýrri greiningu. Markaðsaðstæður í dag eru sagðar hagfelldari borið saman við stöðuna eftir innrás Rússa í Úkraínu snemma árs 2022 og staða helstu viðskiptavina JBT-Marels er nokkuð sterkari núna.
Tengdar fréttir
Hækka verðmatið á JBTM vegna væntinga um meiri vöxt og betri afkomu
Stjórnendur JBT-Marel sjá fram að skila talsvert meiri tekjuvexti á komandi árum heldur en markaðurinn í heild sinni, meðal annars á grunni samkeppnisforskots með breiðari vörulínu en keppinautar, og hlutabréfagreinendur hafa hækkað lítillega verðmat sitt á félaginu sem er langt yfir núverandi markaðsgengi. Hlutabréfaverð félagsins hefur lækkað skarpt eftir stríðsátökin við Persaflóa.
Stóru sjóðirnir á söluhliðinni á fyrsta ári vel heppnaðs samruna JBT og Marels
Allir helstu íslensku lífeyrissjóðirnir voru á söluhliðinni á fyrsta árinu eftir risasamruna JBT og Marels, einkum tveir af stærstu sjóðum landsins, þegar þeir minnkuðu nokkuð stöðu sína í sameinuðu fyrirtæki og seldu fyrir samtals vel á annan tug milljarða króna. Afkoma félagsins hefur að undanförnu ítrekað verið umfram væntingar en mikil veiking Bandaríkjadals hefur litað ávöxtun innlendra fjárfesta í krónum.
Gengi bréfa JBTM rýkur upp eftir fimmtungs hækkun á verðmati
Væntingar eru um að afkoman hjá JBTM muni batna að jafnaði um tuttugu prósent ári fram til 2027 samhliða aukinni eftirspurn í matvælavinnslu, að sögn bandarísks greinenda, sem ráðleggur fjárfestum núna að kaupa í félaginu og hækkar verulega verðmatið.