Leik lokið: Valur – Keflavík 1-1 | Tvö lið sem lengir eftir sigri Gunnar Egill Daníelsson skrifar 21. júní 2026 19:57 Frá leik Vals fyrr á tímabilinu vísir/Diego Valur og Keflavík skildu jöfn, 1-1, þegar þau áttust við í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á N1 vellinum á Hlíðarenda í kvöld. Valur er í fimmta sæti með 16 stig og Keflavík er í sjöunda sæti með tólf stig. Báðum liðum er nú farið að lengja eftir sigri þar sem Valur er án sigurs í deildinni í síðustu fjórum leikjum og Keflavík í undanförnum þremur leikjum. Tryggvi Hrafn Haraldsson kom Val í forystu á 19. mínútu. Jakob Franz Pálsson átti þá glæsilega sendingu fram úr vörninni sem reyndist hin besta stungusending. Tryggvi Hrafn slapp einn í gegn en Davíð Helgi Aronsson hljóp hann uppi. Tryggvi Hrafn lék hins vegar á Davíð Helga hægra megin við markteiginn og renndi boltanum svo á milli fóta hans niður í nærhornið, óverjandi fyrir Ásgeir Orra Magnússon í marki Keflavíkur. Þrátt fyrir mjög fjörugan fyrri hálfleik urðu mörkin ekki fleiri í honum og staðan því 1-0 í leikhléi. Framan af síðari hálfleik var Valur líklegri til að bæta við marki en Keflavík að jafna metin. Gestirnir unnu sig hins vegar vel inn í leikinn þegar leið á hálfleikinn og uppskáru jöfnunarmark þegar stundarfjórðungur lifði leiks. Þorlákur Breki Þ. Baxter átti þá skot við vítateigslínuna vinstra megin sem fór af varnarmanni og aftur fyrir. Þorlákur Breki var fljótur að taka hornspyrnuna frá vinstri stutt á Alpha Conteh, hann átti frábæra fyrirgjöf beint á kollinn á Marin Mudrazija sem skallaði boltann af krafti í netið af stuttu færi. Staðan þá orðin 1-1 og þrátt fyrir tilraunir beggja liða til að sækja sigurmark reyndust það lokatölur. Atvik leiksins Valur slapp með skrekkinn á 27. mínútu þegar Alpha Conteh átti frábæran sprett á vinstri kantinum hjá Keflavík, lék inn í vítateiginn og átti þrumuskot beint í smettið á Frederik Schram í marki Vals. Á meðan Frederik lá óvígur eftir náði Conteh boltanum aftur og reyndi skot eða sendingu af örstuttu færi sem Ólafur Flóki Stephensen varði á marklínu með höndinni. Því hefði Ólafur Flóki átt að fá beint rautt spjald og Keflavík vítaspyrnu. Pétur Guðmundsson dómari dæmdi hins vegar hornspyrnu. Stjörnur og skúrkar Samúel Kári Friðjónsson stýrði ferðinni á miðjunni hjá Val og átti nokkrar gæðasendingar sem hefðu með réttu átt að enda með mörkum. Jónatan Ingi Jónsson var mjög sprækur í sínum fyrsta byrjunarliðsleik í Bestu deildinni í sumar. Í liði Keflavíkur varði Ásgeir Orri Magnússon nokkrum sinnum mjög vel og var sérstaklega hugrakkur í úthlaupum sínum. Alpha Conteh var þá mjög líflegur, hreinlega stórhættulegur og lagði upp mark Keflavíkur. Pétur dómari er skúrkurinn að þessu sinni vegna ofangreinds atviks. Dómarinn Pétur og teymi hans voru að mestu með góð tök á leiknum þó Pétur hafi kannski verið full spar á spjöldin, allavega voru tvö brot sem hann hefði átt að gefa gul spjöld fyrir. Í stærsta atvikinu, atviki leiksins sem fjallað er um hér fyrir ofan, telur ofanritaður svo að Pétur hafi gert stór mistök. Stemning og umgjörð Það var fínasta stemning á Hlíðarenda þó áhorfendur hefðu á stundum mátt láta heyra betur í sér. Fjósið var opið og öll umgjörð í besta standi. Besta deild karla Valur Keflavík ÍF
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn