Gönguferð í garðinum hjá Evrópumeisturunum Aron Guðmundsson skrifar 21. júní 2026 18:02 Lamine Yamal skoraði eitt marka Spánar í dag. Vísir/Getty Evrópumeistarar Spánar eru mættir af alvöru til leiks á HM í fótbolta og í dag sóttu þeir sinn fyrsta sigur á mótinu gegn Sádi-Arabíu. Lokatölur urðu 4-0 sigur Spánverja. Sigur Evrópumeistaranna var aldrei í hættu í dag. Ungstirnið Lamine Yamal kom Spánverjum yfir með sínu fyrsta marki á HM á 10. mínútu leiksins. Röðin var síðan komin að liðsfélaga Orra Steins Óskarssonar hjá Real Sociedad. Mikel Oyarzabal. Hann skoraði næstu tvö mörk Spánverja og stóðu leikar 3-0 í hálfleik. Al Tambakti varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark snemma í seinni hálfleik og reyndist það síðasta mark leiksins. Lokatölur 4-0 sigur Spánverja sem eru með fjögur stig að loknum fyrstu tveimur leikjum sínum H-riðli HM og verma toppsætið. Sádi Arabía er með eitt stig líkt og Úrúgvæ og Grænhöfðaeyjar sem mætast í kvöld. HM 2026 í fótbolta
Leik lokið: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn
Leik lokið: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn