Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar 22. júní 2026 07:32 Í umræðu um Evrópusambandið er stundum talað eins og Ísland hafi lítið að sækja til þeirra ríkja sem við berum okkur helst saman við. Ísland sé svo ríkt og svo augljóslega betur statt utan ESB að það taki ekki því að kanna málið frekar. Sú frásögn rekst á dálítið óþægilegar tölur og Íslendingar sjálfir virðast ekki trúa henni. Samkvæmt Þjóðskrá bjuggu tæplega 12.800 Íslendingar í Danmörku í lok árs 2025, - en aðeins um 825 Danir á Íslandi. Í Svíþjóð bjuggu yfir 9.200 Íslendingar, hér á landi rúmlega 430 Svíar. Sama mynstur, þótt í minni tölum, sést í Hollandi, Lúxemborg og Finnlandi, - alls búa rúmlega 1.400 Íslendingar í þessum löndum en hér á landi 473 frá þeim. Við skulum ekki velja bara þau vestrænu lönd Evrópusamvinnunnar sem henta. Tökum líka þau sem standa á sléttu eða ganga gegn röksemdinni. Þýskaland er nær jafnt (1.893 Íslendingar þar á móti 1.455 Þjóðverjum á Íslandi), á Spáni eru skráðir 986 Íslendingar en 1.884 Spánverjar búa hér, og í Frakklandi 518 á móti 718 Frökkum á Íslandi. (Spánartalan er vanmetin þar sem margir Íslendingar á Spáni halda lögheimili hér heima vegna lífeyris og trygginga, - en lítum fram hjá því). Leggjum þetta allt saman, líka löndin sem draga okkur niður. Í þessum átta vestrænu Evrópuríkjum búa um 26.800 Íslendingar, en hér um 5.800 ríkisborgarar þeirra, - nær fimm sinnum fleiri Íslendingar þar en ríkisborgarar þeirra hér. Hér mætti benda á mótrök, - það búa líka tugþúsundir ESB-borgara á Íslandi. Rétt, - og það segir sömu sögu, ekki andstæða. Pólverjar eru fjölmennastir, um 23.000, á móti 445 Íslendingum í Póllandi. Fólk flytur þangað sem lífskjörin eru betri, - Pólverjar til okkar, Íslendingar til Danmerkur, Lúxemborgar og Svíþjóðar. Sama lögmál, gagnstæð átt. En sannar þetta að lífskjör séu raunverulega betri í því landi sem flutt er til? Ein og sér ekki því fólk flytur af mörgum ástæðum svo sem vegna náms, fjölskyldu og starfs. Ísland er ekki láglaunaland sem fólk flýr. Því hefur verið haldið fram, - og ég hef sjálfur rakið það í grein hér á Vísi, „Hversu rík erum við í raun?", - að há staða Íslands í heildartölum á borð við landsframleiðslu á mann sé að hluta drifin af mikilli atvinnuþátttöku og vinnuframlagi fremur en skilvirkni hins almenna atvinnulífs. En jafnvel þegar horft er á verðmætasköpun á hverja unna vinnustund, nákvæmari mælikvarða á lífskjör, situr Ísland ofarlega í Evrópu, á pari við Þýskaland. Og það gerir mynstrið sláandi. Ef Ísland stæði höllum fæti væri brottflutningur sjálfskýrður. En fólk flytur frá landi sem gengur vel, - og til þeirra ríkja sem standa enn ofar, Danmerkur, Lúxemborgar, Hollands og Svíþjóðar. Þegar við berum okkur saman við þær þjóðir Evrópu sem bjóða almenningi upp á bestu lífskjörin liggur straumurinn fremur út en inn. Það er rökrétt því fæstir flytja til annars lands til að fá verra líf. Íslendingar sem setjast að í Kaupmannahöfn, Amsterdam eða Stokkhólmi eru ekki að fara inn í „brennandi hús". Þeir velja samfélög sem bjóða stöðugleika, sterka innviði, hóflegt vinnuálag, hagstætt verðlag, lága vexti og lífskjör sem standast samanburð. Ef Ísland er svona miklu betra hafa þær tugþúsundir Íslendinga sem búa í þessum vestrænum ríkjum Evrópusambandsins ekki fengið minnisblaðið. Þetta þýðir ekki að Ísland eigi að ganga í ESB. Það þýðir ekki að allt sé betra annars staðar. Ísland er gott land með styrkleika sem við eigum að verja, - mikla atvinnuþátttöku, vinnuvilja og öflugar útflutningsgreinar. En málflutningur sem byggir á því að við séum ríkasta land í heimi og höfum ekkert að læra af vinaþjóðum okkar stenst hvorki reynslu fólks né tölurnar. Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst ekki um aðild. Hún snýst um hvort halda eigi viðræðum áfram, fá samninginn á borðið og sjá hvað raunverulega stendur til boða. Við eigum ekki að tala Ísland niður. En við eigum heldur ekki að loka augunum fyrir því að vinþjóðir okkar hafa ýmislegt fram að færa, - hvort sem við mælum það í fólki eða í verðmætum á hverja vinnustund. Það er munur á þjóðarstolti og sjálfsblekkingu. Þjóðarstolt þolir samanburð. Sjálfsblekking óttast hann. Höfundur er viðskiptafræðingur og stjórnarmaður í félagasamtökunum SJÁ Heimildir: Þjóðskrá Íslands (íslenskir ríkisborgarar erlendis, 1. des. 2025); Hagstofa Íslands, MAN04103 (ríkisborgarar ESB-ríkja á Íslandi, 2026); OECD (verðmætasköpun á vinnustund); Hjálmar Vilhjálmsson, „Hversu rík erum við í raun?", Vísir, 14. júní 2026; Stjórnarráðið (þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar