Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag SÝN 26. júní 2026 11:54 Matreiðsluþátturinn Grillað með Sjöfn hefst næsta þrðijudag á Vísi og Sýn+. Þar fær Sjöfn Þórðardóttir fjölmiðlakona til sín gestakokka sem töfra fram girnilega og stundum óvenjulega grillrétti. Fyrsti gestakokkurinn er Ísak Aron sem var kokkur ársins 2026 og er fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins. Myndir/Hallur Karlsson. Nýr matreiðsluþáttur hefur göngu sína á Vísi og Sýn+ næsta þriðjudag. Þættirnir bera heitið Grillað með Sjöfn en þar fær Sjöfn Þórðardóttir fjölmiðlakona til sín gestakokka sem töfra fram girnilega og stundum óvenjulega grillrétti sem flestir ættu þó að ráða við. „
Þetta er mjög litríkur og skemmtilegur hópur sem heimsækir mig, allt frá landsliðskokkum og bakarameisturum til ástríðukokka og samfélagsmiðlastjarna,“ segir Sjöfn. „Ég valdi þennan hóp sjálf og þau voru ekki lengi að segja já við bón minni. Fljótlega fór ég meira að segja að fá skilaboð frá fólki sem vildi endilega koma fram í næstu þáttarröð þannig að það er óhætt að segja að þetta verkefni fari vel af stað.“ Klippa: Grillað með Sjöfn Þórðar Fjölbreytt flóra gestakokka Þættirnir verða átta talsins og er hver þáttur um 20 mínútur. Fyrsti gestakokkurinn er Ísak Aron sem var kokkur ársins 2026 og er fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins. Aðrir gestakokkar eru Snædís Xyza Mae Jónsdóttir stjörnukokkur og yfirkokkur á Fröken Reykjavík, Rakel María hlaupadrottning, Axel Þorsteinsson bakarameistari og konditor hjá Hygge bakarí, Ragna Björg súrdeigsbrauðsdrottning, Hugi Rafn landsliðskokkur, Adam Helgason samfélagsmiðlastjarna og Ívar Örn, best þekktur sem Helvítis kokkurinn. Uppskriftir sem allir ættu að ráða við Sjöfn segist hafa viljað búa til matreiðsluþætti þar sem boðið er upp á þægilegar uppskriftir sem flestir ættu að geta ráðið við. „Þetta verða líka mjög fjölbreyttar uppskriftir. Við grillum forrétti, aðalrétti og eftirrétti og svo líka meðlætið. Alls konar sjávarfang kemur við sögu, gott kjöt, salat og ávextir svo eitthvað sé nefnt. Ég get lofað því að áhorfendur eiga eftir að fá fjölda skemmtilegra hugmynda yfir þessum þáttum enda er hægt að gera svo margt nýstárlegt og bragðgott á grillinu.“ Leyndardómar leynast víða um land Sjöfn hefur komið víða við þegar kemur að umfjöllun um mat og matargerð. Hún stjórnaði sjónvarpsþættinum Matur og heimili á Hringbraut um fimm ára skeið þar sem hún heimsótti m.a. matarfrumkvöðla víða um land og ýmsa veitingastaði. „Þetta var rosalega skemmtilegur tími og það var svo gaman að sjá hvað alls konar fólk víða um land er að gera spennandi hluti þegar kemur að matargerð og framleiðslu. Það leynast svo sannarlega ýmsir leyndardómar víða um land.“ Síðan var Sjöfn umsjónarmaður matarvefs Mbl.is í um það bil þrjú ár. „Svo hef ég líka ritstýrt ýmsum matreiðslubókum, til að mynda Steikarbók Óskars Finnssonar og fyrstu matreiðslubók Gabríels Kristins Bjarnasonar, matreiðslumanns og landsliðskokks, sem ber heitið Þetta verður veisla. Svo eru fleiri bækur í undirbúningi.“ Hefur þú alltaf haft mikinn áhuga á matargerð? Já, matargerð hefur alltaf átt hug minn allan. Ég hef lengi haft mikla ánægju af því að elda og prófa nýjar hugmyndir. Matargerð tengir okkur líka saman. Hún skapar gæðastundir, bæði við að elda matinn og njóta hans og jafnvel líka að ganga frá eftir matinn. Þetta eru gæðastundir sem hægt er að deila með fjölskyldunni og vinum, matur er manns gaman.“ En hvað ætlar þú að grilla í sumar heima með fjölskyldunni? „Ég er iðin við að prófa eitthvað nýtt. Mér finnst sérstaklega gaman þessa dagana að grilla góða ribeye steik og bera hana fram með heimagerðri chimichurri sósu og alls kyns útgáfum af grilluðum kartöflum. Mér finnst líka gaman að grilla fisk, til dæmis lúðu eða bleikju eða jafnvel heilan fisk, til að mynda sólkola, og bera fram með kaldri ferskri sósu með sítrónu og hvítlauk svo fátt sé nefnt. Í eftirrétt finnst mér gott að grilla ávexti og setja síðan yfir þá gott súkkulaði. Svo klikkar hamborgarinn aldrei en það má prófa sig áfram með alls konar skemmtilegar útfærslur, prófa nýjar sósur og gera eitthvað óvenjulegt. Ég grilla oft hamborgara en þeir eru aldrei eins. Ég er líka búin að fá innblástur fyrir frumlega og ævintýraleg grillrétti hjá gestagrillurum þáttarins sem ég mun án efa leika eftir og setja mitt fingrafar á. Þau heilluðu mig öll upp úr skónum með sínum ómótstæðilegu grillréttum.“
Matur Grillað með Sjöfn Grillréttir Mest lesið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Tónlist Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Lífið samstarf Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Lífið samstarf Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Greta Salóme á von á sínu þriðja Lífið Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Lífið Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Lífið Fleiri fréttir Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Kerlingarfjöll: Ævintýri á hálendi Íslands Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Klassíkin heldur velli en ný bragðævintýri ryðja sér til rúms Bylgjulestin mætir á Þingvelli á laugardag Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Bylgjulestin: Veðurblíða, góðar minningar og sannkölluð hátíðarstemning Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Bylgjulestin: Sólskin og stemning í Grindavík Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Sjá meira