Körfubolti

LaMelo Ball til Úlfanna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
LaMelo Ball kemur úr mikilli körfuboltafjölskyldu.
LaMelo Ball kemur úr mikilli körfuboltafjölskyldu. getty/Rich Storry

Leikstjórnandinn LaMelo Ball er á leið til Minnesota Timberwolves. Hann kemur til liðsins frá Charlotte Hornets sem hann hefur leikið með allan sinn feril í NBA-deildinni í körfubolta.

Minnesota fær Ball og Josh Green í staðinn fyrir Naz Reid og fjóra valrétti. Þá skipta liðin einnig á valréttum í nýliðavalinu 2028, 2029 og 2030.

Toronto Raptors og Portland Trail Blazers höfðu einnig áhuga á Ball sem átti þrjú ár eftir af samningi sínum við Charlotte.

Eftir erfið ár voru Býflugurnar hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina á síðasta tímabili. Liðið vann 44 leiki eftir að hafa aðeins unnið nítján leiki tímabilið á undan. Charlotte tapaði fyrir Orlando Magic í umspilinu um sæti í úrslitakeppninni.

Á síðasta tímabili var Ball með 20,1 stig, 4,8 fráköst og 7,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Hann hefur einu sinni leikið í Stjörnuleik NBA og var valinn nýliði ársins 2021. Áður en Charlotte valdi hann með þriðja valrétti í nýliðavalinu 2020 lék Ball í Ástralíu.

Forráðamenn Minnesota vonast til að Ball létti undir með Anthony Edwards og hjálpi liðinu að taka næsta skref. Úlfarnir féllu úr leik í undanúrslitum Vesturdeildarinnar á síðasta tímabili en komust í úrslit hennar tímabilin tvö þar á undan.

Á ferli sínum í NBA er Ball með 20,8 stig, 5,7 fráköst og 7,3 stoðsendingar að meðaltali í leik.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×