Synir Britney gengu tískupallinn í París Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 29. júní 2026 13:14 Sean Preston og Jayden James gengu tískupallinn fyrir fatamerkið Vetements í París. Getty Jayden James og Sean Preston, synir hinnar heimsfrægu söngkonu Britney Spears, vöktu athygli og lukku á tískuvikunni í París á dögunum þegar þeir gengu tískupallinn fyrir hátískuhönnuði. Strákarnir, sem eru nítján og tuttugu ára gamlir, eru að stíga sín fyrstu skref í bransanum.
Franska lúxus-tískuhúsið Vetements fékk strákana til að sýna nýjustu vörurnar á pallinum en merkið er þekkt fyrir vandaðar vörur sem mætti skilgreina sem götu-tísku (e. street fashion). Jayden James Federline í stílhreinum og skemmtilegum klæðum frá Vetements. Hvítur hlýrabolur, brúnt leðurbelti, silfurkeðja, gallabuxur og brúnir leðurskór. Victor VIRGILE/Gamma-Rapho via Getty Images Sean Preston Federline í frumlegum svörtum síðum satínjakka frá Vetements við svarta skyrtu með svart bindi í gallabuxum og svörtum skóm frá tískuhúsinu. Estrop/Getty Images Britney á strákana með fyrrum eiginmanni sínum, dansaranum Kevin Federline, en foreldrarnir ákváðu að leyfa strákunum að njóta sín án þess að mæta og taka athygli frá þeim. Þeir hafa báðir haldið sig að mestu úr sviðsljósinu undanfarin ár en foreldrar þeirra hafa eldað grátt silfur fyrir augum almennings lengi. Britney sakaði Kevin Federline meðal annars um stöðugar gaslýsingar eftir að hann gaf út ævisögu í fyrra þar sem hann lýsir barnsmóður sinni sem tifandi tímasprengju. Talsmaður Spears svaraði með því að segja hann reyna að hagnast á stjörnunni nú þegar meðlagsgreiðslurnar berast ekki lengur frá henni.
Tíska og hönnun Hollywood Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Sjá meira