Lárus Orri Sigurðsson: ,,Erum ekki í Evrópubaráttu” 29. júní 2026 22:44 Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var ekki sáttur eftir niðurstöðu leiksins í kvöld. Vísir / Anton Brink Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var ósáttur með frammistöðu sinna manna eftir 2-0 tap gegn Fram á ELKEM-vellinum á Akranesi í kvöld. Að hans mati voru Framarar betri frá upphafi til enda og Skagamenn áttu fá svör við leik gestanna. „
Þetta var slæmt tap. Við vorum ekki góðir í dag. Framarar voru mun betri en við, í rauninni bara í 90 mínútur,“ sagði Lárus Orri eftir leik. Hann sagði Framara hafa komið mun ákveðnari inn í leikinn og að ÍA hefði ekki fundið leið til að bregðast við. „Þeir byrjuðu leikinn betur og voru miklu betri aðilinn fyrstu 30 mínúturnar. Þeir voru ákveðnari og gerðu það vel sem við vissum að þeir myndu gera. Við áttum fá svör við því.“ „Við náðum aðeins að narta í þetta og komum okkur betur inn í leikinn. Sennilega var lok fyrri hálfleiks besti kaflinn hjá okkur.“ Í síðari hálfleik reyndu Skagamenn að vinna sig inn í leikinn með því að halda meira í boltanm, en án árangurs. „Seinni hálfleikurinn gekk út á það að við reyndum að opna þá með spilinu, en það gekk ekki neitt.“ ÍA náði ekki að skora í leiknum og hefur átt í erfiðleikum með að koma boltanum í netið á köflum í sumar. Lárus Orri sagðist þó ekki telja það vera stærsta vandamál liðsins eftir frammistöðuna gegn Fram. „Nei, ég hef ekki áhyggjur af markaskoruninni eftir þennan leik. Það eru önnur atriði sem ég hef meiri áhyggjur af.“ „Við vorum eitthvað að gæla við það að reyna að vera í Evrópubaráttu, en við erum ekki í Evrópubaráttu. Það eina sem við erum að berjast um núna er að halda okkur í efri hlutanum og það er baráttan sem er fram undan hjá okkur,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson að lokum.
Besta deild karla ÍA Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Íslenski boltinn „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport Boxari látinn 33 ára: Varð fyrir alvarlegum heilaskaða í bardaga Sport Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Fótbolti Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Enski boltinn „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Fótbolti Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Enski boltinn Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Stefnir langt í Evrópu og á Íslandsmeistaratitil Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Eyjaálfa, fyrir utan Nýja-Sjáland, styður Infantino Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Sonur Klinsmann átti á hættu að geta aldrei gengið aftur Zidane hringdi í gamla liðsfélagann sem lék með honum í Laugardalnum Ekki rétt að hann hafi „risið upp frá dauðum“ „Ánægður með það hvernig strákarnir héldu áfram að trúa“ Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Stefndi í endurkomu en Siggi Raggi og lærisveinar eru úr leik Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Íslendingaliðin Twente og Midtjylland brunuðu áfram í Evrópu Bara hægt að koma Infantino frá völdum með kosningum Gísli Gottskálk meiddist illa á æfingu fyrir fyrsta leikinn Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Elvis kominn í Bítlabæinn Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Kjartan orðinn leikmaður Brann Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Stelpurnar tóku yfir Akureyri Sjá meira