Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. júní 2026 17:58 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, vill að grunnskólanemendur fái aftur einkunnir í tölustöfum. Vísir/Arnar Lokaeinkunnir nemenda úr grunnskóla virðast gefa til kynna að ósamræmi sé í einkunnagjöf milli skóla. Í einum skóla fékk yfir helmingur A í lokaeinkunnum en enginn í öðrum.
Í svari barna- og menntamálaráðuneytisins við fyrirspurn Sigríðar Á. Andersen, þingmanns Miðflokksins, um dreifingu einkunna kemur fram að hlutfall nemenda sem fá A í lokaeinkunn nær frá núll prósentum upp í 56,7 prósent eftir skólum. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins er tekið fram að svo mikill munur geti ekki ráðist eingöngu af frammistöðu nemenda. Hins vegar gefi munurinn til kynna að mikið ósamræmi sé í einkunnagjöf milli skóla og getur lokaeinkunnin haft áhrif á í hvaða framhaldsskóla nemendur komast. Lokaeinkunnir nemenda úr 10. bekk í stærðfæði.Stjórnarráðið „Því getur ósamræmið þar með leitt til mismunar á tækifærum til náms eftir búsetu,“ segir í tilkynningunni. Lokaeinkunnir nemenda í 10. bekk í íslensku.Stjórnarráðið Skoði hvort ganga þurfi lengra Nú í vor var framkvæmt samræmt námsmat í grunnskólum í fyrsta skipti í fimm ár. Markmiðið með prófunum var að fá betri yfirsýn yfir stöðu nemenda í námi og er vonast til að þau ýti undir samræmdari einkunnagjöf á milli skóla. Í tilkynningunni segir að það standi til að skoða „hvort ganga þurfi lengra í samræmdum prófum til að einkunnagjöf endurspegli raunverulega frammistöðu nemenda“. Þá er tekið fram að Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, hyggst afnema einkunnagjöf í bókstöfum og taka aftur upp einkunnagjafir í tölustöfum. „Þessar niðurstöður um einkunnadreifingu í grunnskólum er mikilvægt innlegg í vinnu ráðuneytisins við endurskoðun námsmatsins. Þær draga skýlaust fram mikilvægi þess að námsmati fylgi skýr hæfni - og matsviðmið og eftirfylgni til að tryggja samræmi milli skóla.“
Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Grunnskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fleiri fréttir „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli Sjá meira