Bylgjan slær enn met í hlustun Bylgjan 2. júlí 2026 10:47 Ómar Úlfur Eyþórsson, dagskrárstjóri Bylgjunnar, þakkar einvala liði starfsfólks góðan árangur en Bylgjan er stærsta útvarpsstöð landsins. Bylgjan slær enn met í hlustunartölum með 54% hlutdeild í aldurshópnum 18 - 49 ára og 40% hlutdeild í aldurshópnum 12-80 ára.
Mesta hlutdeild síðustu 16 ár Tölurnar eru með þeim hæstu síðan mælingar í núverandi mynd (PPM mælingar) hófust árið 2008 en hæst hefur Bylgjan farið í 54,3% hlutdeild (vika 6 árið 2010). Vika 25 nú í ár var næsthæsta vikan hjá aldurshópnum 18-49 ára frá upphafi mælinga eða 54%. „Þennan árangur má fyrst og seinast þakka starfsfólkinu sem starfar á og í kringum Bylgjuna,“ segir Ómar Úlfur Eyþórsson en hann hefur verið dagskrárstjóri Bylgjunnar frá því í desember 2025. „Áherslurnar hafa ekki breyst en flottur og samhentur hópur starfar á stöðinni sem leggur sig 110% fram og það er ánægjulegt að finna að það skilar árangri. Mann setur eiginlega hljóðan við að sjá svona tölur enda ekki langt síðan síðustu mettölur bárust. Fyrst og fremst fyrir hlustendur Ómar Úlfur segir starfsfólk Bylgjunnar í sérflokki sem ætli sér sannarlega ekki að slaka neitt á. „Það er ofboðslega gaman í vinnunni en við megum aldrei verða södd. Þetta er stöðug vinna og það situr enginn auðum höndum þrátt fyrir góðan árangur. Heill hellingur af spennandi hlutum verður í gangi í haust og vetur sem við kynnum nánar með haustinu. Fyrst höldum við uppá fertugsafmæli Bylgjunnar með stæl þann 28. ágúst enda búin að hita upp í vor og sumar m.a með Bylgjulestinni sem hefur verið skipuð Bylgjukempum í bland eins og Jóni Axel og Gulla Helga og henni Svansí okkar. Tvíeykið Jón og Gulli taka þátt í dagskrá Bylgjunnar í sumar. Svansí og Svali eru í hópi lestarstjóra Bylgjulestarinnar í ár. „Það er mikilvægt og skemmtilegt að fagna sögunni enda gríðarlegt magn hæfaleikafólks sem hefur starfað á stöðinni síðan 1986. Bylgjan er vinsælasta útvarpsstöð landsins og við erum gríðarlega þakklát hlustendum fyrir samfylgdina og ætlum að halda áfram, björt og brosandi í 40 + ár í viðbót,“ segir Ómar Úlfur.
Bylgjan Bylgjulestin Sýn Fjölmiðlar Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira