Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar 1. júlí 2026 12:03 Í gær, 30. júní, birti fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, Carl Baudenbacher, athyglisverða færslu á Linkedln. Þar gagnrýnir hann Evrópusambandið fyrir að reyna að fá Ísland úr EES og inn í ESB og segir þá stefnu bera vott um skort á stefnumótandi hugsun. Þetta er óvenjulegt sjónarhorn í íslenskri umræðu. Yfirleitt er spurt hvort EES þjóni hagsmunum Íslands eða hvort tímabært sé að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Baudenbacher snýr spurningunni við. Hann spyr hvort Evrópusambandið sé í raun að vinna gegn eigin langtímahagsmunum. Að hans mati ætti ESB að gera allt sem í þess valdi stendur til að varðveita EES. Hann nefnir tvær ástæður. Annars vegar telur hann að ákveðin samkeppni milli ólíkra samstarfsforma í Evrópu sé heilbrigð. Hins vegar bendir hann á að EES gæti reynst mikilvægt samstarfslíkan síðar, ef ríki á borð við Bretland eða Sviss vildu tengjast innri markaðnum án fullrar aðildar að Evrópusambandinu. Hvort menn eru sammála þessari greiningu eða ekki er aukaatriði. Hitt skiptir meira máli að einn kunnasti sérfræðingur Evrópu í EES-rétti telur Evrópusambandið ekki aðeins vanmeta EES heldur jafnvel grafa undan samstarfsformi sem það gæti sjálft haft verulega þörf fyrir í framtíðinni. Það er sjónarmið sem vert er að velta fyrir sér. Á meðan íslensk stjórnmálaumræða snýst að mestu um það hvað EES geri fyrir Ísland, spyr Baudenbacher allt annarrar spurningar: Hvað ef Evrópusambandið er að gera mistök með því að veikja EES? Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Í gær, 30. júní, birti fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, Carl Baudenbacher, athyglisverða færslu á Linkedln. Þar gagnrýnir hann Evrópusambandið fyrir að reyna að fá Ísland úr EES og inn í ESB og segir þá stefnu bera vott um skort á stefnumótandi hugsun. Þetta er óvenjulegt sjónarhorn í íslenskri umræðu. Yfirleitt er spurt hvort EES þjóni hagsmunum Íslands eða hvort tímabært sé að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Baudenbacher snýr spurningunni við. Hann spyr hvort Evrópusambandið sé í raun að vinna gegn eigin langtímahagsmunum. Að hans mati ætti ESB að gera allt sem í þess valdi stendur til að varðveita EES. Hann nefnir tvær ástæður. Annars vegar telur hann að ákveðin samkeppni milli ólíkra samstarfsforma í Evrópu sé heilbrigð. Hins vegar bendir hann á að EES gæti reynst mikilvægt samstarfslíkan síðar, ef ríki á borð við Bretland eða Sviss vildu tengjast innri markaðnum án fullrar aðildar að Evrópusambandinu. Hvort menn eru sammála þessari greiningu eða ekki er aukaatriði. Hitt skiptir meira máli að einn kunnasti sérfræðingur Evrópu í EES-rétti telur Evrópusambandið ekki aðeins vanmeta EES heldur jafnvel grafa undan samstarfsformi sem það gæti sjálft haft verulega þörf fyrir í framtíðinni. Það er sjónarmið sem vert er að velta fyrir sér. Á meðan íslensk stjórnmálaumræða snýst að mestu um það hvað EES geri fyrir Ísland, spyr Baudenbacher allt annarrar spurningar: Hvað ef Evrópusambandið er að gera mistök með því að veikja EES? Höfundur er hagfræðingur.
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar