Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar 1. júlí 2026 15:47 Börn og ungmenni alast upp í heimi þar sem samskipti fara fram á mörgum stöðum í einu. Þau eiga samskipti í skólanum, í frístund, á æfingum, í félagsmiðstöðvum, í tölvuleikjum og á samfélagsmiðlum. Orð sem þau heyra á einum stað geta fljótt ratað yfir á annan. Þess vegna skiptir miklu máli að við fullorðna fólkið séum vakandi fyrir því hvernig börn tala hvert við annað, hvaða orð þau nota og hvaða áhrif þau geta haft. Í starfi mínu sem verkefnastjóri forvarna hitti ég börn, ungmenni, kennara og foreldra í hverfinu sem ég vinn með. Þau hafa lýst yfir áhyggjum af harðari orðræðu í samskiptum barna en þar má nefna niðrandi orð um útlit, uppruna, kyn, kynhneigð, kynvitund, fötlun eða aðra þætti sem tengjast því hver við erum. Stundum er þetta sagt í gríni, stundum í hita leiksins og stundum án þess að barnið geri sér grein fyrir áhrifunum. En orð geta sært, líka þegar þau eru ekki sögð með ásetningi. Þess vegna er ég þess knúin að setja saman grein svohljóðandi bara til þess að vekja okkur til umhugsunar hvað við sem samfélag getum gert til þess að styðja við farsæld allra barna. Samtal foreldra og barns Foreldrar og samfélagið í heild gegna lykilhlutverki í að kenna börnum virðingu í samskiptum. Sú fræðsla og samtal hefst alltaf heima en sú fræðsla þarf ekki alltaf að vera formleg eða flókin. Hún getur átt sér stað við eldhúsborðið, í bílnum, eftir æfingu, þegar eitthvað kemur upp í fréttum eða þegar barn notar orð sem við viljum ekki að festist í daglegu tali. Við getum spurt: „Veistu hvað þetta orð þýðir?“ Við getum sagt: „Þetta orð notum við ekki um annað fólk.“ Við getum hjálpað barninu að finna betri leið: „Hvernig gætirðu sagt þetta án þess að særa eða gera lítið úr einhverjum?“ Að læra af mistökum sínum Mikilvægt er að börn læri að mistök í samskiptum eru tækifæri til að læra. Markmiðið er ekki að skamma börn til hlýðni, heldur að kenna þeim ábyrgð, samkennd og hugrekki til að gera betur. Börn þurfa að vita að þau geta beðist afsökunar, lagað orð sín og tekið þátt í að skapa betri menningu í hópnum sínum. Við þurfum líka að kenna börnum að vera ekki þögulir áhorfendur þegar aðrir verða fyrir niðrandi tali. Það getur verið erfitt að segja stopp, sérstaklega fyrir börn og ungmenni sem óttast að verða sjálf skotmark. En þau geta lært einfaldar leiðir: að hlæja ekki með, skipta um tón, standa með þeim sem varð fyrir orðunum eða leita til fullorðins. Virðing í samskiptum þýðir ekki að allir þurfi alltaf að vera sammála. Hún þýðir að við getum verið ólík, ósammála, í keppni, pirruð eða að grínast án þess að niðurlægja annað fólk. Það er færni sem börn þurfa að læra, æfa og sjá hjá okkur fullorðna fólkinu. Við foreldrar erum fyrirmyndir, líka þegar við áttum okkur ekki á því. Börn heyra hvernig við tölum um annað fólk, hópa, kennara, þjálfara, nágranna, stjórnmálafólk og þau sem eru okkur ólík. Þau læra af orðunum okkar, tóninum okkar og því hvort við leiðréttum okkur þegar við förum yfir mörk. Ef við viljum að börn sýni virðingu þurfum við að tala um virðingu. Ef við viljum að þau setji mörk þurfum við að kenna þeim hvernig. Ef við viljum að þau standi með öðrum þurfum við að sýna þeim að það skiptir máli. Börn og ungmenni eiga skilið að alast upp í umhverfi þar sem þau geta verið þau sjálf án þess að óttast niðurlægingu. Það er verkefni okkar allra: foreldra, skóla, frístundastarfs, íþróttahreyfingar og samfélagsins alls. Við erum öll í sama liði. Og samtalið byrjar heima. Höfundur er verkefnastjóri forvarna hjá Norðurmiðstöð og sérfræðingur í farsæld barna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar