Sport

Heims­meistarinn í beinni á Vísi

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þorsteinn Roy og Tove Alexandersson verða bæði á meðal keppenda um helgina.
Þorsteinn Roy og Tove Alexandersson verða bæði á meðal keppenda um helgina. Samsett

Hið árlega Dyrfjallahlaup fer fram um helgina er stórt íslenskt hlaupasumar heldur áfram. Vísir mun sýna hlaupið í beinni og heimsmeistari verður meðal keppenda.

Heimsmeistarinn Tove Alexanderson tekur þátt um helgina áður en hún hleypur Laugaveginn hér heima. Hún er á hátindi ferilsins og yfirburðir hennar í kvennaflokki eru slíkir að hún mætti rúmum hálftíma á undan næstu konu í mark á Heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum síðasta haust.

Þorsteinn Roy Jóhannsson verður einnig á meðal keppenda og er á meðal allra bestu utanvegahlaupara landsins, og er stigahæstur Íslendinga á ITRA-listanum. Hann mætir í toppformi til leiks eftir að hafa fengið sinn hæsta fjölda stiga í Esju-hálfmaraþoninu í síðasta mánuði.

Sama má segja um Þorberg Inga Jónsson, sem verður meðal keppenda, en hann setti brautarmet í fyrra er hann hljóp brautina á 1:55:39 og er hann sá eini sem hefur hlaupið brautina á undir tveimum klukkustundum. Hann hefur gert það tvisvar.

Snorri Björnsson mun lýsa hlaupinu á Vísi og mikið umstang er í kringum útsendinguna sökum skorts á net- og símasambandi víða um þessa 50 kílómetra löngu braut sem liggur um eyðifirði og víkur þar á meðal Loðmundarfjörð, Húsavík, Breiðuvík og Brúnavík áður en komið er í mark í Borgarfirði Eystra við lundabyggðina í Hafnarhólma.

Bein útsending frá hlaupinu hefst klukkan 10:30 á laugardagsmorgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×