Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Áróra L Davíðsdóttir skrifar 2. júlí 2026 17:36 Fulltrúi Paul Watson-samtakanna tók myndina árið 2023. Imogen Sawyer Á þriðjudag vakti myndband af uppátæki starfsmanns Hvals hf. sem lék sér að limi hvalhræs sem Hvalur 8 dró að landi mikla athygli. Uppátækið virðist ekki vera einsdæmi en ljósmynd frá árinu 2023 sýni starfsmann Hvals í svipuðu látæði.
Myndband frá því á þriðjudag sýnir ungan starfsmann Hvals hf. meðal annars ota lim hvals að tökumanni Vísis, sem var við tökur á svæðinu. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra brást illa við uppátæki starfsmannsins í viðtali í kvöldfréttum á Sýn sama dag og sagði starfsfólkinu að haga sér eins og fullorðið fólk. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, var afar ósáttur við ummæli Hönnu Katrínar og sagði hana eiga að standa með starfsfólki Hvals, ekki gagnrýna það. Katrín Oddsdóttir lögmaður hnýtir í ummæli Vilhjálms í Facebook-færslu og segir „þjóðsöngs-tippadansinn“ ekki hafa verið einsdæmi. Á ljósmynd frá árinu 2023 sjáist starfsmaður Hvals bregða á leik með lim hvals sem dreginn hafði verið á land. Hún segir myndina sanna „að þessi ömurlega vanvirðing gagnvart dýrunum er ekki ný á nálinni.“ Ljósmyndin sem um ræðir. Imogen Sawyer Hún telji ólíklegt að ljósmyndari hafi fangað 0,01 prósent tilvika þar sem starfsmenn komi ekki fram með fagmennsku og virðingu í tvígang. Hún spyr hvort ekki sé komið gott af því að verja vitleysuna þó að einhverjir á Akranesi fái vel borguð sumarstörf sirka þriðja hvert ár. „Þetta er og verður villimannsleg tímaskekkja sem svertir orðspor þeirra sem stunda veiðar á Íslandi, með tilheyrandi hættu á skerðingu atvinnufrelsis þúsunda. Enginn nema þú [Vilhjálmur Birgisson] virðist lengur hafa geð á að svara fyrir störf Hvals hf. sem einkennast af margs konar lögbrotum. Það næst ekki einu sinni í hárnetsprinsinn Kristján [Loftsson],“ segir Katrín. Kristján Loftsson, forstjóri og eigandi Hvals hf., hefur ekki orðið við beiðnum fréttastofu um viðtal í vikunni. Myndbandið af uppátæki starfsmannsins má sjá hér að neðan. Rúv greindi frá því að hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 hefðu haldið til veiða á ný í dag. Mikið umtal hefur verið um hvalveiðar síðustu daga. Matvælastofnun rannsakar af hverju langreyður háði hálftíma dauðastríð eftir að hafa verið skotin af skyttum Hvals og Dýraverndarsamband Íslands krefst þess að veiðarnar verði stöðvaðar og leyfi Hvals afturkallað.
Hvalir Dýr Hvalveiðar Sjávarútvegur Hvalfjarðarsveit Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Sjá meira