Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar 6. júlí 2026 08:02 Afborganir af húsnæðisláni – sem tekið væri í dag – myndi lækka um þriðjung ef evra hefði verið tekin upp í stað íslensku krónunnar. Þetta kemur fram í nýrri ítarlegri hagfræðilegri greiningu sem Gauti B. Eggertsson prófessor við Brown háskóla í Bandaríkjunum tók saman til að sporna við upplýsingaóreiðu í umræðunni um krónu og evru. Afborganir af 60 mkr láni í krónu og evru Muninn má sjá skýrt á meðfylgjandi mynd. Íslendingar borga meira en eignast minna með krónu Sérstaka athygli vekur hvað eignamyndunin í húsnæðinu er miklu meiri – og hraðari - í evruláninu en í krónuláninu. Vextir til bankans í krónuláninu eru 225 þúsund krónur en aðeins 39 þúsund á mánuði í evruláninu. Eignarmyndunin er nær 50% meiri við hverja afborgun í evrum. Það helst í gegnum lánstímann. Það sést vel á annarri skýringarmynd. Dæminu hér að ofan er stillt upp til að draga fram hvað sá gríðarlegi munur sem er á raunvöxtum milli Krónulands og Evrulands hefur á hag dæmigerðs heimilis, en tölulegar forsendur eru sóttar í algengustu lán fyrstu kaupenda á Íslandi miðað við upplýsingar Húsnæðis og mannvirkjastofnunar. Önnur lánaform og greiðsludreifing myndi sýna aðrar myndir en munur, vegna raunvaxtamunar, yrði sambærilegur. Heildarkostnaður heimilanna af krónunni yfir 100 milljarðar króna, árlega Greiningin metur einnig heildar-viðbótarkostnað heimila af krónunni, miðað við húsnæðislánakjör í evrum. Hann reiknast yfir hundrað milljarðar, miðgildið er 108 milljarðar króna, á ári. Þessi kostnaður dreifist misjafnt á heimili, eftir skuldastöðu þeirra. Ljóst er að algengur munur getur verið um 1 milljón króna fyrir viðkomandi heimili á ári, sbr. dæmið hér á ofan þar sem umfram vaxtabyrði heimilis vegna krónunnar með þetta algenga fyrstu kaupenda lán er yfir 1 milljón og 350 þúsund árlega (1.350.000 kr./ári). Er öruggt að vextir lækki með tilkomu evru? Þetta virðist allt saman of gott til að vera satt, ekki satt? Þess vegna er spurt í greiningunni hversu líklegt eða öruggt það er að vextir myndu lækka svona mikið ef evran verður tekin upp. Annars vegar er rakin reynsla fyrstu ríkjanna sem tóku upp evru og áttu það öll sameiginlegt að vextir þeirra lækkuðu gríðarlega og færðust að vöxtum sem áður þekktust bara í Þýskalandi. Hvað með síðari tíma evru-lönd? Um þetta segir í greiningunni. „Söguleg reynsla ríkja sem tekið hafa upp evru á síðustu áratugum styður meginforsendu þessarar greinar. Þegar ríki taka upp evru hverfur gjaldmiðilsáhætta, trúverðugleiki peningastefnunnar eykst og fjármálamarkaðir verða samþættari. Sögulegu gögnin sýna skýrt að 10 ára ríkisskuldabréfavextir færast hratt að evrukjörum. Það þýðir ekki að allir lánasamningar verði eins í öllum löndum, eða að öll bankagjöld og bankavenjur hverfi að fullu. Það þýðir hins vegar að stórt og varanlegt raunvaxtabil af því tagi sem sést á Íslandi er ekki viðvarandi hjá ríkjum sem hafa tekið upp evru.“ Þessu til stuðnings er áhugavert að kynna sér stöðu raunvaxta í Evrópuríkjum, bæði þeim sem eru með evru og ekki, eins og sett er fram í greiningunni. Opin gögn og rekjanleg bæta grunn umræðunnar Styrkurinn við ofangreinda greiningu er að hún er sett fram á fram á fullkomnlega rekjanlegan hátt þannig að staðreyna megi gögn, heimildir og stærðfræðilega útreikninga líkt og þegar um vísindalegar fræðigreinar er að ræða. Þessi grunn vinna er auðvitað sjaldséð í opinberri umræðu á Íslandi en ætti að gefa öllum sem vilja kafa í þetta allt sem þarf – um leið og þessi aðferðarfræði gerir þær kröfur að þeir sem vilja halda öðru fram þurfa að leggja fram gögn og útreikninga máli sínu til stuðnings. Það er engin ástæða til að ætla að íslensk heimili ættu ekki að njóta evrukjara á húsnæðislánum verði evran tekin upp á Íslandi. Tölurnar og munurinn er líka svo stór að augljóst er að upptaka evru í stað krónu er lang-lang-stærsta hagsmunamál heimilanna, í bráð og lengd. Allir sem vilja skoða greininguna í heild geta gert það á slóðinni: https://dagurb.substack.com/ Eða vefslóð Gauta B. Eggertssonar: https://gautieggertsson.github.io/vextir-utreikningar/Drog_ad_mati_vaxtakostnadar_2026.pdf Höfundur er alþingismaður Reykvíkinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagur B. Eggertsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar