Skoðun

Evrópu­sam­bandið og fisk­veiðar

Finnur Torfi Magnússon. skrifar

Það er nokkuð sérstakt að fylgjast með umræðum um komandi kosningar varðandi viðræður við Evrópusambandið. Og þá helst um fiskveiðar.

Við seljum um 70 % af okkar afla til ESB, lítið unninn eða óunninn en ef við vinnum fiskinn í neytendapakkningar þá þurfum við að greiða tolla. Innan sambandsins yrði Ísland undanþegið öllum tollum og gera má ráð fyrir að tekjur landsins gætu hækkað verulega við inngöngu. (Benda má t.d. á að íslenskur, færeyskur og grænlenskur fiskur selst á mjög háu verði innan Danmerkur).

Staða Íslands

Við Íslendingar erum í fremstu röð fiskveiðiþjóða heimsins (í 22. sæti á heimsvísu og skv. skilgreiningu ESB; „Powerhouse of fishing“). Í sambandinu eru aðeins 7 þjóðir sem stunda veiðar að ráði og eru Spánverjar þar stærstir, þá Danir / Frakkar (Ítalir veiða aðeins í Miðjarðarhafinu, en þeir hafa stærsta flotann).

Fiskveiðistjórnum á Íslandi er í fremstu röð á alþjóðavísu og hefur verið mörgum öðrum þjóðum til eftirbreytni og er nokkuð oft vitnað til hennar. Við inngöngu í sambandið, myndum við ekki missa þá stöðu, líklega styrkja hana. Þá má einnig benda á að reglan um hlutfallslegan stöðugleika (relative stability) tryggir að engin ríki ESB geta veitt innan íslenskrar lögsögu, og hefur reglan verið í gildi frá 1983. Ekki hafa verið gerðar á henni breytingar.

Varðandi flökkustofna þá þyrftum við að taka slaginn innan ESB (eins og við gerum í raun nú, með tvíhliða samningum, þríhliða eða fjölhliða samningum við helstu nágrannaríki okkar).

Innganga Íslands

Gangi Ísland inn er mjög trúlegt, ef ekki öruggt, að við fengjum sæti í öllum áhrifamestu ráðum sem fjalla um fiskveiðar og yrðum leiðandi í fiskveiðistjórnum / kvótaákvörðunum innan sambandsins. Því er ákaflega líklegt að Ísland myndi koma að stjórnun helstu sjávarútvegsstofnana innan ESB, og nánast óhugsandi að Ísland missi hlutdeild í veiðum eða þurfi að gefa frá sér veiðiheimildir.

Höfundur er verkfræðingur.




Skoðun

Skoðun

Hver þorir næst?

Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar

Sjá meira


×