Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. júlí 2026 10:41 Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti og Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, tókust í hendur við upphaf fundarins í Ankara. Samborgarar Erodgan hafa síðan fylgt Kristrúnu í hrönnum á gramminu. EPA Kristrún Frostadóttir vakti greinilega athygli heimamanna á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi í vikunni. Fylgjendafjöldi hennar á Instagram hefur fimmfaldast og farið úr 20 þúsundum í rúm 107 þúsund á fjórum dögum. Nýju fylgjendurnir virðast flestir vera Tyrkir og hafa færslur Kristrúnar fyllst af tyrkneskum ummælum.
Árlegur leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins stóð yfir frá þriðjudegi til miðvikudag en í forgrunni voru aukin framlög bandalagsríkja til varnarmála, jafnari skipting byrða og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu. Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn á fundinum og lýsti því til að mynda yfir að vopnahléi við Íran væri lokið og ítrekaði áhuga sinn á Grænlandi. Þá vakti athygli að Bandaríkjaforseti tók aðeins í hönd Kristrúnar að lokinni hópmyndatöku áður en hann gekk út. „Það er hlýtt á milli okkar Bandaríkjaforseta. Ég hef auðvitað hitt hann í nokkur skipti og hann er mjög meðvitaður um stöðu Íslands,“ sagði Kristrún um samband sitt við Trump og sagðist einnig hafa rætt við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Forsætisráðherrann íslenski vakti ekki bara lukku hjá Trump heldur virðast Tyrkir búnir að taka ástfóstri við Kristrúnu. Fylgjendafjöldi Kristrúnar var á þriðjudaginn um 20 þúsund en þegar þessi frétt er skrifuð er hann kominn upp í 107 þúsund og meginþorrinn tyrkneskir aðgangar. Þegar rennt er í gegnum nýjustu færslur blasa við tyrkneskir gullhamrar í tugatali. View this post on Instagram A post shared by Kristrún Frostadóttir (@kristrunfrosta) „Allt Tyrkland er að tala um hógværð þína og glæsileika... Þú ert alls staðar á öllum samfélagsmiðlum. Við hlökkum til að bjóða þig aftur velkomna til Tyrklands,“ skrifar Ali Yılmaz Ergüleç við nýjustu færslu forsætisráðherrans og uppsker þúsundir læka. Önnur ummæli eru í svipuðum dúr og má finna á færslum lengra aftur í tímann. Sömuleiðis virðast tyrknesku fylgjendurnir byrjaðir að fara niður fylgjendalista Kristrúnar til að fylgja þar öðrum Íslendingum. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Tyrkir fá Íslending á heilann. Segja má að dálæti þeirra á Kristrúnu sé akkúrat andstæðan við það sem Benedikt Grétarsson íþróttafréttamaður lenti í árið 2019. Einhver óprúttinn aðili hafði þá otað uppþvottabursta að Emre Belozoglu knattspyrnumanni fyrir knattspyrnuleik Íslands og Tyrklands 11. júní 2019. Tyrkir töldu Benedikt vera manninn með burstann og fylltust samfélagsmiðlar hans af hatursfullum ummælum í töluverðan tíma eftir atvikið.
NATO Samfélagsmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tyrkland Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira